Menning

Að orgelið fái notið sín

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Svafa Þórhallsdóttir, Ella Vala Ármannsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir hefja leikinn þetta árið.
Svafa Þórhallsdóttir, Ella Vala Ármannsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir hefja leikinn þetta árið. Mynd/Lára Sóley Jóhannsdóttir
Þær Svafa Þórhallsdóttir sópransöngkona, Ella Vala Ármannsdóttir hornleikari og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari flytja íslensk sönglög í bland við hátíðlega tóna fyrir horn og orgel í Akureyrarkirkju á morgun klukkan 17, sunnudaginn 2. júlí. Þar með hefja þær dagskrá Sumartónleika í Akureyrarkirkju sem er fastur punktur í menningarstarfi Norðurlands og fagnar nú 30 ára starfsafmæli.





Lára Sóley heldur í alla spotta hátíðarinnar.
„Hér verða tónleikar alla sunnudaga í júlímánuði og dagskráin sem fyrr fjölbreytt og glæsileg,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari sem nú sér um framkvæmd Sumartónleika í Akureyrarkirkju í fyrsta sinn.

„Þegar ég tók við skipulagningunni síðasta haust hafði fjöldi umsókna þegar borist. Ásóknin er mikil og sumir tónleikarnir eru bókaðir um ár fram í tímann,“ lýsir hún.

„Við leitumst við að hafa efnisvalið sem fjölbreyttast og að orgel kirkjunnar, það dásamlega hljóðfæri, fái notið sín. Líka að þar komi fram bæði reynslumiklir listamenn og reynsluminni, þá á ég við hljóðfæraleikara sem eru að hefja feril sinn.“

Lára segir tónleikaröðina hafa í gegnum árin verið vel sótta, bæði af heimamönnum og innlendum og erlendum gestum.

„Ég held að það skipti máli að aðgangur er ókeypis svo allir eiga þess kost að njóta stundarinnar. Tónleikagestir eru af öllum stærðum og þar sem hverjir tónleikar standa aðeins um klukkustund henta þeir vel fyrir yngri hlustendur.

Þetta er eina klassíska tónleikaröðin með tónleikum í fullri lengd sem skipulögð er á Akureyri. Hún skiptir því heilmiklu máli fyrir listalífið  á staðnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×