Ég hef alltaf meiri áhuga á spurningum en svörum Magnús Guðmundsson skrifar 23. júní 2017 13:30 Alicja Kwade, myndlistarkona spyr heimspekilegra spurninga á sýningu sinni í i8 gallerí. Visir/Anton Brink
Einn trilljónasti úr sekúndum, er yfirskrift sýningar listakonunnar Alicja Kwade sem verður opnuð í i8 galleríi í dag. Alicja Kwade er pólsk og þýsk, búsett í Berlín og á meðal nýlegra einkasýninga hennar má nefna sýningu í Whitechapel Gallery í London, Kunsthalle Schirn í Frankfurt am Main auk fjölmargra fleiri verkefna og samsýninga víða um Evrópu og Bandaríkin. Alicja Kwade er rólyndisleg og viðkunnanleg kona. Daginn fyrir opnun ætlar hún að nýta til þess að keyra aðeins um landið og segist ekki setja hráslagalegt veðrið fyrir sig enda hafi hún heyrt þetta sé sérdeilis íslenskt. Alicja hefur þó ekki mikinn tími til þess að skoða Ísland að þessu sinni en það leiðir spjallið að titli sýningarinnar og hvort tíminn sé lykilþáttur í hennar verkum. „Nei, hann er mikilvægur en engu að síður þá hverfast þessi verk ekki um tímann. En auðvitað skiptir tíminn okkur alltaf miklu máli og þá líka í allri sköpun en fyrir mér er hann aðeins eitt af því sem skapar ákveðinn veruleika.“Visir/Anton BrinkAlicja skapar sín verk úr hlutum sem hafa átt samleið með henni á lífsleiðinni. Tölva, lampi, spegill – allt geta þetta verið kyrralífsmyndir samtímans en hugmyndin byggir á því að efniviðurinn birti sjálfsævisögulegt innihald listamannsins. „Efniviðurinn samanstendur af hlutum sem ég hef lengi verið að vinna með í minni sköpun. Hlutir eins og lampi og tölva sem hafa fylgt mér lengi. Eldri verkin byggja á því að þessir nytjahlutir eru í raun malaðir mélinu smærra, svo aðskil ég þau efni sem þeir eru búnir til úr, og loks endurmóta ég þá í gerbreyttri mynd. Efnismassi hlutanna breytist ekki í þessu ferli heldur verða þeir að dufti sem ég vinn með og gef svo nýtt form, nýja lögun og tilgang. Þannig verður hlutur sem hefur tengst mér eða öllu heldur þjónað mér á lífsleiðinni að einhverju allt öðru en úr sama efninu.“ Verk Alicju eru einkar falleg í forminu og hún segir að vissulega hafi ákveðnir hlutir gert ákveðið tilkall til þess að snúa aftur í ákveðnu formi. „Tölvan mín hefur núna tekið á sig klassíkst form, antík-form, en ég er ekki að skapa þetta í ákveðnum stíl eða sem eftirmyndir heldur fremur að leitast við að finna kjarna þessara forma. Í rauninni skoðaði ég mikið af formum víða að úr heiminum og vann þetta svo út frá því.“ Á sýningunni eru einnig verk sem virðast hafa sterka skírskotun inn í heim hins mælanlega; stærðfræðinnar og eðlisfræðinnar en Alicja segir að verk hennar snúist í raun ekki um slík vísindi heldur fremur leitist hún við að draga allar þessar eigindir saman. „Hvers vegna er efni eins og það er? Hvers vegna erum við hér? Hvers vegna erum við til og eins og við erum? Hvers vegna hugsum við um veruleikann? Allar þessar spurningar og auðvitað miklu fleiri. Viðfang þessara spurninga getur verið tíminn en líka tungumálið, samfélagið og allt það sem við sjáum sem ákveðinn veruleika. Það þarf allt þetta til.“ Er það kjarni þeirra verka sem þú vinnur með klukkuvísum og mögulegum vísunum í plánetur? „Fyrir mér eru þetta allt ákveðnar línur, ákveðnar víddir sem geta í raun aldrei mæst. Fyrirbæri sem renna aldrei saman heldur verða að vera á sinni línu, í sinni vídd. Þannig er líka komið fyrir okkur í þessu lífi, við erum bundin af okkar vídd, tíma og efni. Við erum föst á okkar línu. Fyrir mér snýst þessi sýning þannig fyrst og fremst um þá heimspekilegu spurningu: Hvað er efni? Þess vegna skipta líka titlar verkanna miklu máli því það sem þú sérð er pottur en verkið heitir lampi. Þú sérð vasa og hann heitir klukkur. Þess vegna er þetta líka um tungumálið og okkur sem manneskjur og hvernig við skilgreinum allt. En það er eitthvað sem við gerum eftir formum, notagildi og í ákveðnum tíma og þess vegna skipta allar þessar eigindir máli. Skipta okkur máli og hvernig við skilgreinum veröldina sem við getum kallað okkar vídd.“ En er þá til að mynda trúin ákveðin þörf fyrir að víkja af þessari vídd eða að minnsta kosti tengjast annarri? „Trúin er eitthvað sem ég ætti að hafa áhuga á í þeim skilningi að í henni er fólgin leit að einhverjum veruleika. En fyrir mér er eitthvað of einfalt við þetta. Vandinn er að ég trúi ekki. Verkin mín snúast miklu fremur um það að hafna trú, að trúa engu og efast um allt. Ég sem listamaður lít á mig sem eins konar landkönnuð en trúin er vissulega forvitnilegt fyrirbæri sem er áhugavert að skoða og leitast við að skilja. Enda hef ég alltaf meiri áhuga á spurningunum en svörunum.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. júní.
Menning Mest lesið Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Lífið Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Lífið „Restin í hárið“ reglan gildir í Flonkyball Lífið samstarf Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Lífið Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Lífið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið María Sigrún leikur í einni dýrustu mynd allra tíma Bíó og sjónvarp Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið Fleiri fréttir Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein „Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“ Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Eliza hlaut heiðursverðlaun Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna Kaflaskil í íslenskri menningarsögu Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun „Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir Sjá meira