Erlent

Fær meira áhorf eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Bill O'Reilly, fréttamaður á Fox News
Bill O'Reilly, fréttamaður á Fox News Nordicphotos/AFP
Ásakanir um að hafa áreitt samstarfsmenn kynferðislega og fréttir um að hafa greitt viðkomandi samstarfsmönnum til að greina ekki frá áreitninni hafa ekki haft áhrif á áhorf á þátt bandaríska fréttamannsins Bill O'Reilly, The O'Reilly Factor. Fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt fréttir af athæfi O'Reilly undanfarið.

Washington Post greindi hins vegar frá því að 3,7 milljónir hafi horft á þátt hans síðastliðinn mánudag og 3,8 milljónir á þriðjudagsþáttinn. Vikuna áður, það er áður en fréttir af áreitni birtust, horfðu 2,3 milljónir á þann þátt vikunnar sem fékk mest áhorf.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×