Viðskipti innlent

Nói harmar meinlega myntukonfektmola

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Plastmagnið í eggi frá Nóa Siríus í fyrra sem var mikið gagnrýnt. Brugðist var við þeirri gagnrýni en ekki gert ráð fyrir áhrifum myntukonfektmolanna.
Plastmagnið í eggi frá Nóa Siríus í fyrra sem var mikið gagnrýnt. Brugðist var við þeirri gagnrýni en ekki gert ráð fyrir áhrifum myntukonfektmolanna. Andrés Skúlason
Óhætt er að segja að viðleitni Nóa Siríus til að sýna umhverfislega ábyrgð hafi ekki tekist fullkomlega upp. Undanfarin ár hefur árlega gætt töluverðrar reiði meðal umhverfisverndarsinna hvað varðar allt það plast sem er notað til að pakka sælgætinu inn sem er að finna innan í páskaeggjunum.

Í ár var ákveðið að hafa plastið í lágmarki og fjarlægja það sem mátti missa sín. Úr varð að fjölmargir fundu piparmyntubragð af eggjum sínum og voru allt annað en sáttir.

Á Facebook-síðu Nóa Siríus, sem hefur verið í fararbroddi hvað varðar páskaeggjasölu undanfarin ár og áratugi, hefur fólk svarað páskakveðju frá fyrirtækinu með reiðilestri vegna þessa.

„Gaf dóttur minni 4 ára venjulegt egg nr4 og hún sagđi ađ væri skrítið og vildi ekki borða það…ég smakkaði það og það er piparmyntu bragđ af egginu! Hvađa klúður er það?“ segir einn kaupandi.

„Ég og dóttir mín fengum eitt páskaegg hingað út til Noregs frá Íslandi, egg nr. 4 venjulegt. Fyrir okkur er það gull að fá svona frá Íslandi, nema hvað það olli miklum vonbrigðum í ár. Eggið er skrýtið og var enginn málsháttur í egginu :-( Svekkelsi.... hef alltaf haldið mig við egg frá ykkur, en veit ekki lengur.“

Nói Siríus harmar myntusmitið í stöðluðu svari á Facebook-síðu sinni vegna málsins. Myntukonfektmolum sé um að kenna sem hafi ekki verið pakkað inn í plast. Öllum ósáttum neytendum hefur verið svarað á og þeir hvattir til að hafa beint samband við fyrirtækið svo hægt sé að aðstoða það frekar.

„Okkur þykir þetta ákaflega leitt en svo virðist sem að myntumolarnir hafi smitað út frá sér bragði í sum eggin í ár eftir að við fjarlægðum plastumbúðirnar af molunum vegna aukinnar áherslu á umhverfisábyrgð. Við ætlum sannarlega að læra af þessu og finna lausn sem kemur í veg fyrir að það endurtaki sig enda eiga neytendur að sjálfsögðu að geta gengið að gæðunum vísum þegar kemur að súkkulaði frá Nóa Síríus. Endilega hafðu samband við okkur sem fyrst í tölvupósti á noi@noi.is til að við getum aðstoðað þig.“

Markaðsstjóri Nóa Siríus sagði í viðtali við Vísi í fyrra að ástæðan fyrir öllu plastinu væri einmitt til að hindra svona smit.

„Ástæðan fyrir að sumar vörur eru settar í plast inn í eggjunum er sú að það er verið að verja þær eða aðrar vörur, það getur verið smitun á milli, sérstaklega í bragði,“ sagði Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Nóa.

Stefna fyrirtækisins væri að minnka notkun á plasti, sem fyrirtækið gerði en með misjöfnum árangri.

 



Nói Siríus hefur að eigin sögn aldrei selt fleiri páskaegg en í ár.vísir/stefán
Ítarlegri yfirlýsingu frá Nóa Siríus má sjá hér að neðan og viðbrögð neytenda við færslu Nóa Siríusar þar að neðan.

Vegna auk­inn­ar vit­und­ar um um­hverf­is­ábyrgð fyr­ir­tæk­is­ins þá var ákveðið að fjar­lægja allt plast og umbúðir sem máttu missa sín úr eggj­un­um. Þetta var virki­lega krefj­andi verk og mjög viðkvæmt þar sem þurfti að stíga var­lega til jarðar. Við hóf­um því gíf­ur­lega um­bóta­vinnu bæði hvað varðar umbúðir og vinnsl­una á eggj­un­um sjálf­um. Því miður er greini­legt að myntu kon­fekt­mol­inn hafa í ein­hverj­um til­fell­um smitað út frá sér og neyt­end­ur hafa haft sam­band við okk­ur um það. Myntu Pralín mol­arn­ir voru tekn­ir úr þeim umbúðum sem þeir hafa ávalt verið í og þess vegna myndaðist smit í egg­in. 

Við hjá Nóa hörm­um þetta at­vik að öllu leiti og erum að vinna að því að svara þeim sem að lentu í því að páska­eggið þeirra bragðaðist ekki eins og Nóa súkkulaði ber að bragðast. Það er virki­lega leiðin­legt að þetta hafi komið upp, sér­stak­lega í ljósi þess að þetta er stærsta páska­vertíð Nóa Síríus frá upp­hafi. Nýj­ung­arn­ar slógu í gegn og við erum í skýj­un­um yfir viðtök­un­um á markaðnum. Starfs­fólk Nóa, öll sem eitt, er búið að standa virki­lega vel að þessu tíma­bili og á mikið lof skilið. Þetta er virki­lega skemmti­leg­ur tími fyr­ir okk­ur og til að mynda þá bjugg­um við í fyrsta skipti til sér­stakt egg ein­ung­is fyr­ir þá sem starfa hjá Nóa. Við mun­um gera það að hefð og koma fólk­inu á óvart ár hvert, þetta vakti mikla lukku.

En hvað pip­ar­myntu­málið varðar þá mun­um við taka hart á þessu, þar sem neyt­end­ur eiga geta gengið að gæðunum vís­um þegar kem­ur að súkkulaði frá Nóa Síríus, enda óbreytt upp­skrift frá upp­hafi og alltaf lagður mik­ill metnaður í fram­leiðslu þess.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×