Rannsóknarnefnd Alþingis: Aðkoma Hauck & Aufhäuser aðeins til málamynda við kaup á Búnaðarbanka Hörður Ægisson skrifar 27. mars 2017 04:00 Tilkynnt var um sölu á 45,8 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbanka til Eglu ehf. í janúar 2003. vísir/gva
Aðkoma þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum á 45,8 prósenta eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands í ársbyrjun 2003 var í „reynd aðeins að nafni til“ að mati sérstakrar rannsóknarnefndar Alþingis og voru kaupin fjármögnuð í gegnum aflandsfélag á vegum Kaupþings. Samkvæmt gögnum sem nefndin hefur aflað sér verði ekki annað séð en „að fjárfesting Hauck & Aufhäuser í gegnum Eglu hf. í, og síðar með sama hætti eignarhald á, hlutum í Búnaðarbankanum hafi […] aðeins verið til málamynda og tímabundið“, auk þess sem þýska bankanum hafi verið „tryggt skaðleysi af þátttöku sinni í þessum viðskiptum“. Þetta kemur fram í bréfi rannsóknarnefndarinnar frá því 13. mars síðastliðinn sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Í bréfinu segir að gögn og upplýsingar nefndarinnar „sýna að dagana áður en skrifað var undir kaupsamning Eglu hf. og annarra lögaðila (það er hins svonefnda S-hóps) um kaup á hlut íslenska ríkisins í Búnaðarbankanum hf. 16. janúar 2003, stóð hópur manna að gerð tveggja samninga varðandi hluti Hauck & Aufhäuser í Eglu hf. á milli annars vegar Hauck & Aufhäuser og hins vegar aflandsfélagsins Welling & Partners Limited, skráðu á Bresku-Jómfrúareyjum, sem Kaupþing hf. útvegaði til að standa að samningnum.“ Þar var um að ræða svonefndan söluréttarsamning (e. Put Option Agreement) en hinn samningurinn varðaði veð- og tryggingaráðstafanir (e. Pledge and Security Agreement). Þeir sem stóðu að gerð þessara samninga, að því er kemur fram í bréfi nefndarinnar, voru meðal annars „nokkrir starfsmenn“ Kaupþings á Íslandi og dótturfélags þess í Lúxemborg og auk þess starfsmenn Hauck & Aufhäuser, einkum þá Martin Zeil, þáverandi forstöðumaður lögfræðideildar bankans. Í bréfinu segir að ekki verði séð „að íslenska ríkið eða aðrar stofnanir þess hafi á nokkru stigi verið upplýst um gerð þessara samninga, efni þeirra og áhrif, sem og atvik varðandi síðari framkvæmd þeirra.“ Kaupþing sameinaðist Búnaðarbanka þremur mánuðum eftir söluna á hlut ríkisins. Rúmum tveimur árum eftir að þýski bankinn eignaðist hlut í Búnaðarbankanum í gegnum félagið Eglu var hann búinn að selja allan hlutinn til annarra hluthafa innan S-hópsins en á meðal þeirra sem leiddu þann hóp var Ólafur Ólafsson fjárfestir. Alþingi samþykkti í júní í fyrra þingsályktunartillögu um að aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaupum S-hópsins á 45,8 prósenta hlut ríkisins fyrir um 11,9 milljarða yrði rannsökuð af sérstakri rannsóknarnefnd sem hefði víðtækar heimildir til að kalla eftir upplýsingum. Sá sem fer með rannsóknina er Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari en gert er ráð fyrir að skýrsla nefndarinnar verði birt opinberlega á miðvikudaginn. Fram kemur í bréfi rannsóknarnefndarinnar, sem var sent á ýmsa einstaklinga sem höfðu aðkomu að kaupunum og þar sem óskað var eftir frekari skýringum þeirra rétt áður en vinnu við skýrsluna lyki, að samkvæmt gögnum nefndarinnar hafi þýski bankinn „enga fjárhagslega áhættu tekið“ með þessum viðskiptum. „Fjárhagslegir hagsmunir bankans af þeim hafi takmarkast við þóknun sem samið var um samkvæmt samningunum en öll hagnaðarvon af umræddum hlutum í Eglu hf. þess í stað verið áskilin gagnaðila bankans að samningunum, það er fyrrgreindu aflandsfélagi, Welling & Partners Limited.“ Þá bendir rannsóknarnefndin á að hún hafi einnig undir höndum gögn sem varpi ljósi á framkvæmd samninganna um sölurétt og veð- og tryggingaráðstafanir og ráðstafanir sem þeim tengdust, meðal annars af hálfu starfsmanna Kaupþings á Íslandi og Kaupþings í Lúxemborg. „Má þar einkum nefna viðskipti milli Hauck & Aufhäuser og Welling & Partners Limited með umrædda hluti í Eglu hf. sem fóru fram á grundvelli ákvæða samninganna á næstu misserum eftir gerð þeirra og fjárhagslegt uppgjör sem átti sér stað á hagnaði aflandsfélagsins vegna þeirra viðskipta,“ segir í bréfinu. Í svarbréfi Ólafs Ólafssonar til nefndarinnar, sem Fréttablaðið hefur einnig undir höndum, er fullyrt að „engum blekkingum [hafi] verið beitt gagnvart ríkinu“ þegar hluturinn í Búnaðarbanka var keyptur. S-hópurinn hafi boðið hæsta verð fyrir hlutinn og ríkið hafi fengið kaupverðið greitt að fullu.Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka.Segist ekki hafa notið ávinnings af viðskiptunum Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir í svarbréfi sínu til rannsóknarnefndarinnar 20. mars að hann „reki ekki minni“ til aflandsfélagsins Welling & Partners Limited sem nefndin telur að Kaupþing hafi útvegað til að standa að samningum sem gerðir hafi verið vegna viðskiptanna. Hann bendir á að viðskiptin hafi átt sér stað fyrir meira en 14 árum og að rannsóknarnefndin hafi ekki lagt fram nein gögn þegar hann mætti til skýrslugjafar sem gátu skýrt hverju hún væri að leita að. „Ég hef því ekki átt kost á því að staðreyna hvort lýsing málsatvika í bréfi þínu sé rétt.“ Þá segir Sigurður að um starfsemi bankans hafi gilt bankaleynd og að Kaupþing hafi verið umsvifamikill aðili í bæði lána- og afleiðuviðskiptum. „Ég get fullyrt við þig að ég naut ekki ávinnings af þeim viðskiptum sem lýst er í bréfi þínu. Þá get ég upplýst þig um að ég veit ekki annað en að hinn þýski banki Hauck & Aufhäuser hafi verið hluthafi í Búnaðarbankanum og síðar í sameinuðum banka Kaupþings Búnaðarbanka hf. í gegnum eignarhald í félaginu Eglu hf. Fulltrúi bankans var eftir sameiningu bankanna kjörinn í bankaráð Kaupþings Búnaðarbanka og sinnti skyldum sínum vel í stjórn bankans.“ Þá gagnrýnir Sigurður í bréfinu þá fyrirætlan að skila skýrslu á grundvelli þessara gagna „án þess að hafa einu sinni kynnt þau eða borið undir mig“ og segir að það veki hjá honum „ótta um að rannsóknin sé hrein sýndarmennska og væntanlegar niðurstöður í skýrslu þinni verið fyrirfram ákveðnar.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Salan á Búnaðarbankanum Tengdar fréttir Tekur vel í að salan á Búnaðarbankanum verði könnuð Vigdís Hauksdóttir hefur talað fyrir því að rannsaka síðari einkavæðingu bankanna. Segir eðlilegt að gera það samhliða því að skoða sölu Búnaðarbankans árið 2003. 25. maí 2016 13:01 „Hauck & Aufhäuser var leppur það er alveg augljóst“ Í undirbúningi er þingsályktunartillaga um sérstaka rannsókn á aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Tilefnið er bréf umboðsmanns Alþingis. Bankinn virðist hafa verið fjármagnaður af Kaupþingi banka til að auðvelda sameiningu Búnaðarbankans og Kaupþings í maí 2003. 25. maí 2016 20:00 Finnur Ingólfsson kannast ekki við að þýski bankinn hafi verið leppur Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að skipun rannsóknarnefndar vegna aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum á Búnaðarbankanum. Aðilar innan S-hópsins kannast ekki við að bankinn hafi verið leppur. 26. maí 2016 07:00 Kjartani Bjarna falið að rannsaka einkavæðingu Búnaðarbankans Stefnt er að því að rannsókninni ljúki fyrir árslok. 7. júlí 2016 10:58 Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
Tekur vel í að salan á Búnaðarbankanum verði könnuð Vigdís Hauksdóttir hefur talað fyrir því að rannsaka síðari einkavæðingu bankanna. Segir eðlilegt að gera það samhliða því að skoða sölu Búnaðarbankans árið 2003. 25. maí 2016 13:01
„Hauck & Aufhäuser var leppur það er alveg augljóst“ Í undirbúningi er þingsályktunartillaga um sérstaka rannsókn á aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Tilefnið er bréf umboðsmanns Alþingis. Bankinn virðist hafa verið fjármagnaður af Kaupþingi banka til að auðvelda sameiningu Búnaðarbankans og Kaupþings í maí 2003. 25. maí 2016 20:00
Finnur Ingólfsson kannast ekki við að þýski bankinn hafi verið leppur Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að skipun rannsóknarnefndar vegna aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum á Búnaðarbankanum. Aðilar innan S-hópsins kannast ekki við að bankinn hafi verið leppur. 26. maí 2016 07:00
Kjartani Bjarna falið að rannsaka einkavæðingu Búnaðarbankans Stefnt er að því að rannsókninni ljúki fyrir árslok. 7. júlí 2016 10:58