Erlent

Mannskæðustu uppþotin í brasilísku fangelsi frá 1992

Atli Ísleifsson skrifar
Ættingjar fanga í Anísio Jobim fangelsinu í Manaus bíða fregna fyrir utan fangelsið í gær.
Ættingjar fanga í Anísio Jobim fangelsinu í Manaus bíða fregna fyrir utan fangelsið í gær. Vísir/AFP
Uppþotin sem áttu sér stað í brasilíska fangelsinu í Manaus í gær eru þau mannskæðustu í landinu frá árinu 1992. Alls fórust 56 manns í þessu fjölmennasta fangelsi í Amasón-ríki þar sem liðsmönnum tveggja gengja lenti saman.

Uppþotin stóðu í um sautján klukkustundir þar sem mörgum hálshöggnum líkum fanga var varpað yfir veggi fangelsins. Á annað hundrað fanga tókst að flýja úr fangelsinu.

Fangar sem flúði úr fangelsinu hafa birt myndir af sér á Facebook.facebook
Óeirðirnar í Anísio Jobim fangelsinu í gær eru þau mannskæðustu frá blóðbaðinu í Carandiru fangelsinu í São Paulo árið 1992 þar sem 111 fangar lágu í valnum eftir aðgerðir lögreglu við að ná aftur tökum á ástandinu sem hafði skapast.

Fjöldi alvarlega atvika hafa síðan komið upp í brasilískum fangelsum sem eru alræmd fyrir að vera yfirfull og þar sem fangar lifa við hörmulegar aðstæður.

Í þeim hluta Anísio Jobim fangelsisins þar sem uppþotin áttu sér stað sátu 1.224 manns inni á deild sem ætluð er 454 föngum.

Ljósmyndari AFP hefur lýst ástandinu sem fyrir augu bar – þar sem blóðug lík lágu sem hráviði á jörðinni á lóðinni og á kerrum.

Fangar á flótta.facebook
Lögregla leitar nú fanga sem lögðu á flótta um fjölda ganga sem hafa nú fundist í fangelsinu, en 144 fanga er enn leitað.

Talið er að liðsmenn glæpaklíkunnar FDN (Família do Norte), sem stofnuð var í Amasón, hafi með því að hálshöggva ákveðna fanga viljað senda skilaboð til annarrar glæpaklíku, PCC (Primeiro Comando da Capital), sem starfar aðallega í São Paulo.

„Í viðræðunum sem ætlað var að binda enda á uppþotin, voru fangarnir varla með neinar kröfur. Við teljum að þeim hafi þegar tekist að gera það sem þeir ætluðu sér – að drepa liðsmenn hinnar klíkunnar,“ segir Sérgio Fontes, talsmaður yfirvalda í Amasón-ríki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×