Viðskipti innlent

Hæsti­réttur þyngdi dóm Hreiðars Más í markaðs­mis­notkunar­málinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Á meðal ákærðu voru æðstu stjórnendur Kaupþings fyrir hrun, þeir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Magnús Guðmundsson sem var forstjóri bankans í Lúxemborg.
Á meðal ákærðu voru æðstu stjórnendur Kaupþings fyrir hrun, þeir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Magnús Guðmundsson sem var forstjóri bankans í Lúxemborg. Vísir/GVA
Hæstiréttur þyngdi rétt í þessu dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, í markaðsmisnotkunarmálinu svokallaða. Um er að ræða eitt umfangsmesta efnahagsbrotamál sem komið hefur til kasta dómstóla hér á landi. Alls voru níu manns ákærðir í málinu, ýmist fyrir markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik á tímabilinu 1. nóvember 2007 til 8. október 2008.

Átta ár eru í dag, upp á dag, síðan bankarnir féllu á Íslandi og Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað Guð um að blessa Ísland í ræðu sem hann flutti í sjónvarpi.

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var sakfelldur fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun og umboðssvikum. Alls var Magnús ákærður í níu liðum en sýknaður í sjö þeirra. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var hann sýknaður og var hluta málsins gegn honum vísað frá dómi. Frávísunin stóð óröskuð í Hæstarétti. Honum var ekki gerð refsing í Hæstarétti.

Sömuleiðis sakfelldi Hæstiréttur Björk Þórarinsdóttur, sem sat í lánanefnd bankans, en hún hafði verið sýknuð af ákæru um umboðssvik í héraði. Henni er líkt og Magnúsi ekki gerð refsing í málinu.

Á meðal ákærðu voru æðstu stjórnendur Kaupþings fyrir hrun, þeir Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri bankans, Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður bankans og Ingólfur Helgason sem var forstjóri bankans á Íslandi. Allir hlutu þeir óskilorðsbundna dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní 2015.

Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, ekki gerð frekari refsing umfram þá refsingu sem hann hafði hlotið í Al Thani-málinu. Í Al Thani-málinu hafði Hreiðar Már verið dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi en Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað að láta þá fangelsisvist nægja fyrir markaðsmisnotkunarmálið þar sem Hreiðar Már var fundinn sekur.  Hæstiréttur ákvað hins vegar í dag að Hreiðar skyldi sæta sex mánaða fangelsisvist fyrir markaðsmisnotkunarmálið og bætist hún því við fimm árin og sex mánuðina sem hann hafði verið dæmdur til að afplána vegna Al Thani-málsins.

Aðrir dómar úr héraði voru óraskaðir. 

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var dæmdur til eins árs fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í þessu máli en það ár bættist við þau fjögur sem hann hafði hlotið í Al Thani-málinu. 

Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, var dæmdur í fangelsi í fjögur og hálft ár í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann var ekki á meðal ákærðu í Al Thani málinu. 

Þá hlaut Bjarki Diego, sem sat í lánanefnd Kaupþings, tveggja og hálfs árs fangelsisdóm en Einar Pálmi Sigmundsson, var yfir eigin viðskiptum Kaupþings, hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Pétur Kristinn Guðmarsson og Birnir Sær Björnsson, starfsmenn eigin viðskipta, hlutu 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.

Markaðsmisnotkunin í málinu snerist annars vegar um mikil kaup eigin viðskipta Kaupþings á hlutabréfum í bankanum og hins vegar um nokkrar stórar sölur á hlutabréfum í Kaupþingi til þriggja eignarhaldsfélaga, Holt, Mata og Desulo, en umboðssvikin snerust meðal annars um lánveitingar til þessara þriggja félaga svo þau gætu fjármagnað kaupin á hlutabréfunum. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×