Erlent

Telja hryðjuverkamennina níu talsins

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
129 létust í árásunum í París. Minningarathafnir hafa verið haldnar víða um Frakkland undanfarna daga, en þessi mynd var tekin í Toulouse í dag.
129 létust í árásunum í París. Minningarathafnir hafa verið haldnar víða um Frakkland undanfarna daga, en þessi mynd var tekin í Toulouse í dag. vísir/epa
Frönsk lögregluyfirvöld hafa nú undir höndum myndskeið sem sýnir fram á að hryðjuverkamennirnir í árásunum í París hafi verið níu talsins. Á vef BBC segir að sá níundi hafi verið á meðal þeirra sem hafi skotið á kaffi- og veitingahús í borginni, og að mannsins sé nú leitað.

Umfangsmikil leit stendur yfir í Frakklandi og Belgíu að Belganum Salah Abdeslam, sem grunaður er um aðild að árásunum. Þá ríkir mikill viðbúnaður í Frakklandi, en yfirvöld hafa virkjað 115 þúsund lögreglumenn og hermenn vegna árásanna. Þrír eru í haldi í Belgíu; tveir karlar og ein kona, í tengslum við málið.  

Jean-Yves Le Drian, varnarmálaráðherra Frakklands, hefur óskað eftir því að Evrópusambandsríki komi Frakklandi til aðstoðar.


Tengdar fréttir

„Blómin og kertin eru hér til að vernda okkur“

Viðtal sem franskur blaðamaður tók við tvo feðga síðastliðinn laugardag í París, skammt frá tónleikastaðnum Bataclan, hefur vakið mikla athygli á vefnum síðastliðinn sólarhring.

Kerry segir liðsmenn Isis vera siðblind skrímsli

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að vígamenn Isis samtakanna séu siðblind skrímsli. Hann segir að ekki sé um baráttu tveggja siðmenninga að ræða, eins og sumir haldi fram, enda sé ekkert siðfágað við þá og þeirra hugmyndafræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×