Innlent

Al Jazeera um heilbrigðiskerfi Íslands: „Að gefa eftir vegna niðurskurðar og landlægs spekileka“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lög voru sett á verkfall hjúkrunarfræðinga eftir þriggja vikna verkfall.
Lög voru sett á verkfall hjúkrunarfræðinga eftir þriggja vikna verkfall. Vísir/Vilhelm
Fréttastofa Al Jazeera fjallaði í vikunni um ástand heilbrigðiskerfis Íslands í langri grein.

Greinin ber fyrirsögnina: „Sótt að heilbrigðiskerfi Íslands frá öllum hliðum.“ Blaðamaðurinn Ned Resnikoff skrifar greinina en hann er sérfróður um verkalýðsmál meðal annars.

„Á göngum Landspítalans, stærri spítalans af þeim tveimur stærstu á Íslandi, er örmögnunin áþreifanleg. Neyðarmóttakan á að vera mönnuð af tíu hjúkrunarfræðingum á hverri vakt. En í þrjár vikur í lok maí og snemma í júní þurfti bráðamóttakan að láta það ganga upp að hafa átta hjúkrunarfræðinga á vakt,“ segir í upphafi greinarinnar.

Líður eins og allt kerfið sé í niðurníðslu

Resnikoff hefur greinilega tekið viðtöl við íslenska hjúkrunarfræðinga þar sem þær lýsa ástandinu.

„Auðvitað er maður bara rosalega þreyttur,“ sagði Hrönn Stefánsdóttir, ein hjúkrunarkona Landspítalans. „Ég er að vinna 33 klukkutíma um helgina og síðastliðna þrjá daga hefur verið einhver ónotatilfinning í maganum á mér, bara við að velta því fyrir mér hvernig þetta verður eiginlega.“

Í greininni er útskýrt að staðan í þessar þrjár vikur hafi verið afleiðing verkfalls sem skipulagt var af félagi hjúkrunarfræðinga til þess að mótmæla lágum launum og heilbrigðiskerfi sem nú þegar er að gefa eftir vegna niðurskurðar og landlægs spekileka (e.brain drain).

„Mörgum hjúkrunarfræðingum sem starfa á spítölum og heilsugæslustöðvum landsins líður eins og allt kerfið sé í niðurníðslu.“

Skjáskot af greininni sem um ræðir.Vísir
Ísland langt á eftir öðrum Norðurlöndum

Greinin fjallar einnig um hversu langt Ísland er á eftir nágrannalöndum sínum þegar kemur að launum heilbrigðisstarfsmanna og í raun og veru hvað varðar allar aðrar stéttir líka.

„Ég held að hjúkrunarfræðingar hafi beðið of lengi með það að segja hingað og ekki lengra. Af því að það er í eðli okkar, að hjálpa fólki,“ sagði Björg Þórhallsdóttir, söngkona og hjúkrunarfræðingur í hlutastarfi. „Og við þurftu mað gera það svo lengi, bara hlaupa hraðar, vinna meira, þangað til við fórum yfir mörk þess sem telst öruggt.“

Fjölmargir hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum sínum eftir að lög voru sett á verkföll heilbrigðisstétta í síðustu viku. Resnikoff ræddi við unga hjúkrunarkonu sem hefur aðeins starfað í fimm mánuði en hefur þegar sótt um leyfi til þess að starfa í Edinborg í Skotlandi.  Hún heitir Margrét Guðmundsdóttir og er 26 ára gömul. „Ég er ung, ég á engin börn og mér líkar ekki umhverfið og launin hérna,“ sagði hún. „Þannig að ég ætla að fara.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×