Viðskipti innlent

Eggert Skúla og Kolla Bergþórs nýir ritstjórar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eggert Skúlason var í haust fenginn til að gera úttekt á starfsemi DV.
Eggert Skúlason var í haust fenginn til að gera úttekt á starfsemi DV. Vísir/STefán
Stjórn DV ehf hefur ákveðið að ráða Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Eggert Skúlason sem ritstjóra DV. Þá hefur Hörður Ægisson verið ráðinn viðskiptaritstjóri blaðsins. Verða þau Kolbrún, Eggert og Hörður jafnframt ritstjórar dv.is.

Hallgrímur Thorsteinsson, sem verið hefur ritstjóri DV undanfarna mánuði, mun að eigin ósk leiða stefnumótun á sviði talsmálsútvarps á vegum Pressunnar og hefur þegar tekið til starfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Steini Kára Ragnarssyni, framkvæmdastjóra DV.

Áður hafði verið greint frá því að Kolbrún yrði ritstjóri en þremur blaðamönnum DV var sagt upp störfum í dag.

„Kolbrún er ein reyndasta fjölmiðlakona landsins, hefur unnið sem blaðamaður og yfirmaður menningarmála á Fréttablaðinu, Blaðinu og nú síðast Morgunblaðinu. Þá er hún einn þekktasti bókmenntagagnrýnandi landsins.

Eggert er margreyndur fjölmiðlamaður, var um árabil fréttastjóri á Tímanum, ritstjóri Veiðimannsins og svo fréttamaður á Stöð 2 um árabil. Hann hefur síðari ár rekið eigið fyrirtæki á sviði almannatengsla.

Hörður hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir viðskiptafréttir sínar fyrir Morgunblaðið.“

Frekari breytingar væntanlegar í hagræðingarskyni

Þá segir í tilkynningunni að til þess að ná fram skipulagsbreytingum og hagræða í rekstri hafi nokkrum starfsmönnum DV verið sagt upp í dag. Verða ennfremur gerðar breytingar á aðkeyptu efni í hagræðingarskyni. Sé það í samræmi við markmið nýrrar stjórnar DV að félagið verði rekið með hagnaði árið 2015.

Næsti útgáfudagur DV er föstudagurinn 9. janúar næstkomandi. Fréttavefurinn dv.is verður þó áfram rekinn allan sólarhringinn eins og verið hefur.

Í byrjun nýs árs verða kynntar margvíslegar breytingar á DV sem ætlað er að fjölga áskrifendum og auka lausasölu. Jafnframt verður ráðist í ýmsar markaðsaðgerðir til að styrkja stöðu blaðsins, en það var stofnað sem Dagblaðið Vísir árið 1910.

Útgefandi DV er Björn Ingi Hrafnsson og Steinn Kári Ragnarsson er framkvæmdastjóri.


Tengdar fréttir

Sigurður G. eignast hlut í Pressunni

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi forstjóri Norðurljósa hefur keypt 10 prósenta hlut í fjölmiðlafyrirtækinu Pressunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×