Innlent

Hætt við að hús í Skeifunni hrynji

Gissur Sigurðsson skrifar
Sverrir Björn Bjarnason varðstjóri segir heppni hafa ráðið því að enginn slasaðist en menn voru inni í húsi Rekstrarlands þegar þar sprakk.
Sverrir Björn Bjarnason varðstjóri segir heppni hafa ráðið því að enginn slasaðist en menn voru inni í húsi Rekstrarlands þegar þar sprakk. visir/valli
Fimmtán slökkviliðsmenn eru enn á vakt á brunastað í Skeifunni í Reykjavík, en eiginlegu slökkvistarfi lauk um klukkan hálf fimm í nótt. Svæðið verður áfram lokað fyrir öllum mannaferðum þar sem mikil hætta er á að þök kunni að hrynja. Svæðið verður hugsanlega girt af í nokkra daga vegna hættunnar. Þetta segir  Sverrir Björn Bjarnason, varðstjóri í slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

„Þetta er náttúrlega stórhættulegur vettvangur þar sem þök húsanna geta hrunið. Enginn veit hvort eða hvenær það gerist, en nú þegar er hluti þaks hússins þar sem Griffill var til húsa hruninn. Þess vegna fór enginn slökkviliðsmaður þarna inn í þessi hús,“ segir Sverrir Björn.

Strengjasteypuþök og stórhættuleg

Ástæðan fyrir því að sérstök hætta er í Skeifunni er að þök húsanna eru reist með strengjasteypubitum, sem þýðir að sérstök hætta er á að þau hrynji til grunna. Bitarnir eru steyptir með forspenntum strengjum/vírum innan í. Verði einstaka strengir fyrir skemmdum missa bitarnir styrk sinn og eru líklegir til að hrynja.

„Já, þetta eru strengjasteypuþök og þau eru þekkt fyrir það að vera stórhættuleg ef upp kemur eldur í húsum sem þannig eru byggð.“

Fordæmi eru fyrir því. Eldri menn í slökkviliðinu þekkja það frá því eldur kom upp í húsi þar sem veitingastaðurinn Persía var við Grensásveg. Og svo kviknaði fyrir löngu í Álafossi þar sem slík þök voru einnig. Þannig að þetta er stórhættulegt svæði að sögn Sverris Björns.

Fundur með tryggingarfélögum

Þetta þarf að brjóta niður ef það hrynur ekki sjálft, þegar hitinn fer úr þessu. Því er stórhætta á svæðinu sem verður girt af eins og hægt er, nú með morgninum. Ákvörðun um þetta verður tekin á fundi sem haldinn verður með tryggingarfélögum nú klukkan átta.

Sverrir segir um 110 slökkviliðsmenn hafi tekið þátt í aðgerðunum þegar mest var.

„Við fengum menn frá Isavia, við fengum menn frá brunavörnum Suðurnesja, við fengum menn frá brunavörnum Árnessýslu, við fengum aðstoð frá heilbrigðisstofnun Suðurnesja, síðan fékk lögregla aðstoð frá björgunarsveitum við lokanir. Ekki veitti nú af. Mannfjöldinn var nú þvílíkur þarna í kring,“ segir Sverrir Björn, og vísar til þess að fjölmargir sinntu ekki varnaðarorðum og óskum lögreglu og slökkviliðs um að fólk héldi sig frá brunastað.

Eins og að vera staddur í styrjöld

„Og hættan var mikil. Þarna sprungu gaskútar og allskonar þannig efni. Þetta var á tímabili eins og að vera í styrjöld. Sem betur fer slasaðist enginn en menn voru inni í Rekstrarlandi, að skoða aðstæður, þegar þar sprakk og voru menn heppnir – eins og oft áður.“

Nú liggur fyrir að kanna hvort einhverjar reykskemmdir hafa orðið í nálægum húsum, sem flest voru mannlaus þegar eldurinn gaus upp þannig að gluggar kunna að hafa verið opnir. Það var lán í óláni hversu veður var stillt þegar eldurinn logaði hvað mest, því öðrum kosti hefði reykjarmökkur lagst fyrir heilu íbúðahverfin með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 


Tengdar fréttir

Mikill eldur í Skeifunni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna mikils elds sem logar í Skeifunni.

Eldurinn kviknaði í Þvottahúsi Fannar

"Það var unnið í þvottahúsinu í dag en enginn var við störf þegar eldurinn kom upp. Þar er náttúrulega mikill eldsmatur, þar sem við erum að þvo lín fyrir hótel og öldrunarheimili," segir Þorvarður Helgason, verkstjóri hjá Fönn.

„Við munum rísa úr öskunni fljótt“

Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans, sem á og rekur verslunina Griffil, gengur út frá því að allt sé farið sem þar sé innandyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×