Viðskipti innlent

Kaupþingsrannsókn: Látnir lausir gegn tryggingu

Sjömenningarnir sem handteknir voru í London í gær í tengslum við rannsókn Serious Fraud Office í London voru látnir lausir gegn tryggingu. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi Serious Fraud Office - Kate Winstanley. Hún segir Kaupþingsmálið stórt og flókið í eðli sínu. Yfir níutíuprósent mála SFO enda með sakfellingu.

Sjö voru handteknir í Bretlandi í gær. Þrír fyrrverandi starfsmenn Kaupþings, þeir Sigurður Einarsson, Ármann Þorvaldsson og Guðni Níels Aðalsteinsson. Þá voru bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz, helstu lántakar Kaupþings handteknir og tveir samstarfsmenn þeirra.

Serious Fraud Office í Bretlandi gerði húsleitir á átta heimilum og fyrritækjum í gær. Fréttablaðið greinir frá því í morgun að meðal annars hafi verið leitað í dótakössum barna og myndaalbúmum flett.

Í samtali við fréttastofu sagði Kate Winstanley að Kaupþingsmálið væri sérstaklega stórt og flókið. Þeir handteknu hefðu verið látnir lausir í gær gegn tryggingu. Hún sagði að rannsókn yrði haldið áfram en vildi ekki tjá sig um hvenær henni yrði hugsanlega lokið.

Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar Einarsson, kannaðist ekki við að sakborningarnir hefðu verið látnir lausir gegn tryggingu. Ekki var krafist farbanns yfir þeim og eru þeir því frjálsir ferða sinna. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði að yfirheyrslur myndu halda áfram í málinu í dag.


Tengdar fréttir

Tengist rannsókn SFO

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að handtökurnar sem gerðar voru í Bretlandi í morgun og í Reykjavík tengist rannsókn sem efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hefur verið með í gangi síðan 2009.

Aðgerðirnar í dag beinast eingöngu að lánum til Tchenguiz

Aðgerðir Serious Fraud Office (SFO) og sérstaks saksóknara í dag tengjast eingöngu rannsóknum á meintum brotum vegna lánveitinga Kaupþings til Robert Tchenguiz og tengdra aðila en ekki meintum blekkingum eða villandi upplýsingagjöf Kaupþings eða rannsókn SFO á EDGE-reikningunum.

Kaupþingsaðgerð vekur mikla athygli ytra

Umfangsmikil aðgerð efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO og lögreglunnar í London í morgun hefur vakið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum. Þetta er m.a. helsta frétt Financial Times á vefsíðu þess blaðs í dag.

Tchenguiz-bræður og Sigurður Einarsson handteknir í Lundúnum

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Robert Tchenguiz, sem var stærsti viðskiptavinur bankans, voru handteknir í Lundúnum í morgun í sameiginlegri aðgerð Serious Fraud Office í Bretlandi og embætti sérstaks saksóknara á Íslandi.

Leituðu í leikfangakössum og flettu myndaalbúmum

Húsleitirnar vegna rannsóknar Serious Fraud Office (SFO) á starfsemi Kaupþings fyrir hrun voru gríðarlega ítarlegar. Heimildir Fréttablaðsins herma að leitað hafi verið í dótakössum barna og myndaalbúmum flett.

Verða yfirheyrðir í allan dag

Búast má við því að mennirnir sem handteknir voru í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, í Bretlandi í morgun verði látnir lausir áður en degi lýkur, segir David Jones upplýsingafulltrúi SFO. Hann segist ekki búast við því að krafist verði gæsluvarðhalds yfir mönnunum.

Bjarki Diego og Guðni Níels á meðal þeirra handteknu

Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, er annar þeirra tveggja sem handteknir voru í morgun í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Þá var Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar bankans, handtekinn í Lundúnum.

Kaupþingsrannsókn: Hægri hendur teknar höndum

Aaron Brown og Tim Smalley eru ekki þekkt nöfn, en þeir hafa engu að síður hlotið umfjöllun í Bretlandi sem drifkrafturinn og heilinn – eða öllu heldur heilarnir – að baki viðskiptaveldis Roberts Tchenguiz, hins írask-íranska kaupsýslumanns.

Nærmynd: Glaumgosinn Robert Tchenguiz

Bresk-íranski kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz, sem handtekinn var í Lundúnum í morgun í tengslum við rannsókn Serious Fraud Office á Kaupþingi, sat í stjórn Exista og var stærsti einstaki lántakandi Kaupþings banka fyrir hrunið.

Segist ekki hafa mótmælt afhendingu gagnanna

Ólafur Ólafsson, fyrrverandi stjórnarformaður og einn aðaleigenda Kaupþings, segist engar athugasemdir hafa gert við það að gögn frá Kaupþing í Lúxemborg sem sérstakur saksóknari fór fram á og tengdust rannsókn á Kaupþingssamstæðunni yrðu afhent. Fullyrt hefur verið í fjölmiðlum í dag að Ólafur væri einn þeirra sem hefði mótmælt því að sérstakur saksóknari fengi gögnin afhent.

Bloomberg/BBC: Rannsóknin tengist Edge

Bæði Bloomberg fréttaveitan og BBC segja í fréttum sínum af handtöku Tchenguiz-bræðra og Kaupþingsmanna í London í morgun að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO tengist m.a. Edge reikningum Kaupþings í Bretlandi.

Yfirheyrslum yfir Bjarka og Guðmundi lauk á áttunda tímanum í kvöld

Yfirheyrslum yfir tveimur fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings lauk á áttunda tímanum í kvöld. Þetta segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Yfirheyrslum yfir sjö einstaklingum í London átti að ljúka í kvöld, en Ólafur Þór hafði ekki upplýsingar um hvort þeim væri lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×