Viðskipti innlent

Viðskiptastjóri handtekinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sérstakur saksóknari hefur handtekið tvo menn í morgun. Mynd/ Stefán.
Sérstakur saksóknari hefur handtekið tvo menn í morgun. Mynd/ Stefán.

Sérstakur saksóknari handtók í morgun Guðmund Þór Gunnarsson, sem var viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings.

Guðmundur Þór er annar tveggja manna sem handtekinn var á Íslandi vegna rannsóknar bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, á hruni Kaupþings. Hinn er Bjarki Diego, sem starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri útlánasviðs Kaupþings.

Auk þeirra voru sjö manns handteknir í Bretlandi vegna rannsóknar málsins.


Tengdar fréttir

Tengist rannsókn SFO

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að handtökurnar sem gerðar voru í Bretlandi í morgun og í Reykjavík tengist rannsókn sem efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hefur verið með í gangi síðan 2009.

Kaupþingsaðgerð vekur mikla athygli ytra

Umfangsmikil aðgerð efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO og lögreglunnar í London í morgun hefur vakið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum. Þetta er m.a. helsta frétt Financial Times á vefsíðu þess blaðs í dag.

Tchenguiz-bræður og Sigurður Einarsson handteknir í Lundúnum

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Robert Tchenguiz, sem var stærsti viðskiptavinur bankans, voru handteknir í Lundúnum í morgun í sameiginlegri aðgerð Serious Fraud Office í Bretlandi og embætti sérstaks saksóknara á Íslandi.

Verða yfirheyrðir í allan dag

Búast má við því að mennirnir sem handteknir voru í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, í Bretlandi í morgun verði látnir lausir áður en degi lýkur, segir David Jones upplýsingafulltrúi SFO. Hann segist ekki búast við því að krafist verði gæsluvarðhalds yfir mönnunum.

Bjarki Diego og Guðni Níels á meðal þeirra handteknu

Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, er annar þeirra tveggja sem handteknir voru í morgun í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Þá var Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar bankans, handtekinn í Lundúnum.

Nærmynd: Glaumgosinn Robert Tchenguiz

Bresk-íranski kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz, sem handtekinn var í Lundúnum í morgun í tengslum við rannsókn Serious Fraud Office á Kaupþingi, sat í stjórn Exista og var stærsti einstaki lántakandi Kaupþings banka fyrir hrunið.

Bloomberg/BBC: Rannsóknin tengist Edge

Bæði Bloomberg fréttaveitan og BBC segja í fréttum sínum af handtöku Tchenguiz-bræðra og Kaupþingsmanna í London í morgun að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO tengist m.a. Edge reikningum Kaupþings í Bretlandi.

Ármann Þorvaldsson líka handtekinn

Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi bankastjóri Singer&Friedlander, er einn þeirra manna sem handtekinn var í Bretlandi í morgun, samkvæmt heimildum fréttastofu. Eins og fram hefur komið tengjast aðgerðir efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, rannsókn sem hefur verið í gangi síðan í desember 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×