Viðskipti innlent

Forstjóri MS hættir vegna anna erlendis

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Sigurðsson, fráfarandi forstjóri MS.
Einar Sigurðsson, fráfarandi forstjóri MS. Mynd/Mjólkursamsalan
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu, hefur ákveðið að láta af störfum 30. júní næstkomandi. Einar greindi stjórn Mjólkursamsölunnar frá þessu í gær, en hann hefur verið forstjóri félagsins frá 2009, og leitt umfangsmiklar breytingar á starfseminni hér heima og uppbyggingu erlendrar starfsemi fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mjólkursamsölunni.

Málefni MS hafa verið mikið til umfjöllunar undanfarna mánuði í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið sektaði fyrirtækið um 370 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum.

„Ég kom að rekstri Mjólkursamsölunnar fyrir sex árum og meginverkefnið hefur verið að koma á nýju skipulagi í mjólkurvinnslu á öllu landinu, endurnýja tækjabúnað, ná fram hámarkshagræðingu og byggja upp alþjóðlega starfsemi félagsins. Þetta hefur tekist vegna þess að Mjólkursamsalan hefur á að skipa frábærum og samhentum hópi starfsfólks og vegna þátttöku og stuðnings bænda sem eiga fyrirtækið,“ segir Einar Sigurðsson.

Vinnur áfram fyrir MS erlendis

„Ég tek þessa ákvörðun vegna breytinga sem verða á högum fjölskyldu minnar í lok júní. Við hjónin ákváðum fyrir um ári síðan að hverfa bæði úr mjög annasömum stjórnunarstörfum hér heima um mitt þetta ár og dvelja og starfa töluvert erlendis næstu misseri. Ég sný mér þar að nýjum verkefnum sem ég hef lengi haft áhuga á hrinda í framkvæmd, en jafnframt mun ég áfram vinna fyrir hönd Mjólkursamsölunnar að uppbyggingu nýs fyrirtækis með hópi fjárfesta til framleiðslu og sölu á skyri í

Bandaríkjunum. Þar sem ég hef tekið þessa ákvörðun og skammt er til aðalfundar

Mjólkursamsölunnar og deildafunda með kúabændum um land allt taldi ég rétt að greina frá þessu núna,“ segir Einar Sigurðsson.

Einar segir að Mjólkursamsalan hafi fengist við ögrandi viðfangsefni á liðnu ári, fyrst vegna stóraukinnar eftirspurnar, sem fyrirtækið hafi unnið úr með bændum sem hafa stóraukið mjólkurframleiðslu, og síðar vegna samkeppnismála, þar sem tekist sé á um túlkun á samspili búvörulaga og samkeppnislaga. „Ég vona að það takist að ljúka þeim málum áður en ég hætti nú í sumar.“

Segir fyrirtækið betur í stakk búið nú en fyrir fimm árum

Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum og stjórnarformaður Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu, segir að mikil eftirsjá verði af Einari. Hann hafi komið að fyrirtækinu sem var í erfiðri stöðu rétt eftir hrunið og hafi ásamt stjórn og stjórnendum félagsins leitt starfsemina til farsællar niðurstöðu með því að endurskipuleggja allan reksturinn, hagræða og byggja upp arðbæra alþjóðlega starfsemi.

„Félagið er nú mun betur í stakk búið að takast á við verkefni næstu ára. Allur tækjabúnaður hefur verið endurnýjaður. Eftirspurn eftir framleiðslu kúabænda hefur aldrei verið meiri og vex stöðugt hér heima. Þriggja milljarða króna hagræðing í rekstrinum hefur skilað sér í lægra vöruverði og útflutningur og sala á þjónustu og þekkingu á sviði skyrframleiðslu skila verulegum ábata til framtíðar. Framundan er endurskoðun búvörulaga og gerð nýs búvörusamnings, sem móta rekstrarumgjörð

bændanna og mjólkuriðnaðarins sem þeir eiga.“

Egill segir að fljótlega muni félagið hefja undirbúning


Tengdar fréttir

Vilja að MS-málið fái flýtimeðferð

Félag atvinnurekenda leggur áherslu á að mál Mjólkurbúsins Kú gegn Mjólkursamsölunni, sem verður nú rannsakað á nýjan leik hjá Samkeppniseftirlitinu, fái flýtimeðferð.

Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×