Innlent

Fólki sama um merktar gjafir

fanney birna jónsdóttir skrifar
Mikill meirihluti vill að Kiwanis og Eimskip fái að gefa grunnskólabörnum merkta reiðhjólahjálma. Reglur Reykjavíkurborgar um gjafir koma í veg fyrir slíkt.
Mikill meirihluti vill að Kiwanis og Eimskip fái að gefa grunnskólabörnum merkta reiðhjólahjálma. Reglur Reykjavíkurborgar um gjafir koma í veg fyrir slíkt.
Yfir 90 prósent landsmanna vilja að Kiwanishreyfingin og Eimskip fái að gefa grunnskólabörnum reiðhjólahjálma og fræðsluefni um mikilvægi og notkun þeirra. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Kiwanis og Eimskip.

Reykjavíkurborg bannaði gjafirnar í byrjun þessa árs, þar sem hjálmarnir voru merktir Eimskipafélaginu, sem stangast á við reglur sem kveða á um að að ekki megi afhenda grunnskólabörnum gjafir á skólatíma séu á þeim merkingar. Þá komu sömu reglur í veg fyrir að Tannlæknafélag Íslands fengi að gefa börnum tannbursta og tannþráð. Kiwanis og Eimskip hafa gefið 1. bekkingum reiðhjólahjálma í ellefu ár.

Í könnuninni kemur fram að 90,3 prósent eru hlynnt gjöfunum. Alls voru 5,5 prósent andvíg og þeir sem svöruðu hvorki né voru 4,2 prósent.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu í janúar fram tillögu um endurskoðun reglnanna í borgarráði. Þeir telja þær of þröngar og komi meðal annars í veg fyrir kynningar í öryggis- og heilbrigðismálum. „Þetta er skiljanleg niðurstaða. Það á að vera sjálfsagt að börn fái að þiggja hluti sem eru gefnir börnum til góða eins og hjálma, tannbursta og sólmyrkvagleraugu. Þetta kallar augljóslega á að vinnunni við að breyta reglunum verði flýtt. Það gengur ekki að borgaryfirvöld séu svona mikið í óþarfa stríði til að halda úti alltof einstrengingslegum reglum sem hefur nú að auki fengist staðfesting á að er svo gott sem enginn áhugi fyrir hjá foreldrum,“ segir Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir endurskoðun reglnanna í ferli. „Ég hef óskað eftir því að það verði klárað á þessu vori. Þessar reglur voru settar ekki síst að beiðni skólastjóra á sínum tíma, sem fannst óþægilegt að engin viðmið væru um hvar mörkin liggja í þessu. Vinnuhópur skilaði í kjölfarið tillögum sem sviðið samþykkti sem reglur um þetta árið 2013. Það voru skiptar skoðanir á þeim eins og þessi könnun staðfestir og þess vegna erum við að endurskoða þetta núna.“ Úrtak könnunarinnar var 1.750 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Fjöldi svarenda var 1.050. Um netkönnun var að ræða sem framkvæmd var 5. til 13. febrúar.


Tengdar fréttir

Segir ómögulegt að gefa ómerkta tannbursta

„Þetta gekk allt saman vel þar til á síðasta ári og í ár þegar einhver skólastjóri lætur vita af óánægju sinni,“ segir Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélagsins.

Vilja ekki að börnin séu sett í erfiðar aðstæður

"Reglurnar eru alveg skýrar með það og ekki hægt að heimila að gefa börnum gjafir frá fyrirtækjum á skólatíma,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×