Innlent

Grunnskólabörn í Reykjavík mega ekki fá hjálma merkta Eimskipafélaginu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Kiwanishreyfingin hefur gefið grunnskólabörnum hjálma sem Eimskipafélagið hefur lagt til. Það má hreyfingin ekki gera lengur í Reykjavík.
Kiwanishreyfingin hefur gefið grunnskólabörnum hjálma sem Eimskipafélagið hefur lagt til. Það má hreyfingin ekki gera lengur í Reykjavík. Vísir/Pjetur
Reykjavíkurborg hefur bannað Kiwanishreyfingunni að gefa börnum reiðhjólahjálma merktum Eimskipafélaginu. Merking hjálmanna stangast á við reglur borgarinnar sem kveða á um að ekki megi afhenda grunnskólabörnum gjafir á skólatíma séu á gjöfunum merkingar. Fyrrverandi stjórnarmaður í hjálmanefnd Kiwanis á Íslandi furðar sig á málinu.

„Okkur var bannað að koma í skólana og afhenda þetta á skólatíma. Í einhverjum tilvikum var tekið við kössunum af skólastjórnendum og hjálmarnir teknir úr kössunum og afhendir börnunum en kössunum og öðru sem í þeim var tekið og hent, af því að það var merkt Eimskipum,“ segir Ólafur Jónsson, sem setið hefur í hjálmanefnd síðustu ár.

Sjá einnig: Börn í Reykjavík mega ekki fá tannbursta

Eimskip hefur gefið árlega um fjögur þúsund hjálma í verkefni Kiwanis sem eru svo gefnir öllum grunnskólabörnum í fyrsta bekk. Það er enn gert utan höfuðborgarsvæðisins.Eimskip hefur gefið hjálma til verkefnisins síðan árið 2003 en verkefnið sjálft hófst á Akureyri fyrir 25 árum síðan.

Auk hjálmanna hefur börnunum verið gefið buff og bolti, sem einnig eru merktir Eimskipum. Ólafur segist ekki skilja bannið. „Maður skilur ekki sjónarmiðið á bakvið þetta,“ segir hann og bætir við að mikilvægt sé að geta gefið börnunum hjálmana áður en þau fara út í umferðina á vorin. „Við förum fram með þetta sem öryggismál.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×