Menning

Flakkarar og sérvitringar í galleríi i8

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Nokkrir af karakterunum á sýningunni Annars vegar fólk eftir Birgi Andrésson. Hér sjást þau Sólon Íslandus (Sölvi Helgason), Oddur sterki af Skaganum, Hallbera Hekla og Pétur prentari.
Nokkrir af karakterunum á sýningunni Annars vegar fólk eftir Birgi Andrésson. Hér sjást þau Sólon Íslandus (Sölvi Helgason), Oddur sterki af Skaganum, Hallbera Hekla og Pétur prentari. Vísir/Stefán
„Verkið Annars vegar fólk er líflegt persónugallerí, með 60 myndum af kynlegum kvistum sem stóðu á jaðri samfélagsins á 19. öld og í byrjun þeirrar 20,“ segir Þorlákur Einarsson hjá i8.

Þar er hann að lýsa listaverki eftir Birgi Andrésson myndlistarmann (1955-2007) sem er til sýnis í Galleríi i8 í Tryggvagötu 16 fram til 28. október.

„Þetta eru myndir sem Birgir gróf upp hér og þar og stækkaði, ljósmyndir, póstkort og í nokkrum tilvikum teikningar af Íslendingum sem voru utangarðs í þjóðfélaginu. Þetta voru flakkarar og sérvitringar, mismiklir gæfumenn en margir þekktir meðal samferðamanna,“ segir Þorlákur og vitnar í Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræðing sem benti á að flækingar hafi, ásamt skáldum og stjórnmálamönnum, verið fræga fólkið á Íslandi á sinni tíð.



Ein af myndunum á sýningunni Annars vegar fólk er af Gústa guðsmanni. Fréttablaðið/Stefán
En eru myndirnar merktar? „Já, það er hægt að lesa nöfn allra á myndunum sjálfum, eða þau nöfn sem menn gengust við á sínum tíma sem oft voru gælunöfn.

Upphaflega var þetta verk, Annars vegar fólk, sýnt 1991. Það kom síðast fyrir sjónir manna árið 2006 þegar það var á stórri heildarsýningu á verkum Birgis, meðan hann var enn á lífi, að sögn Þorláks.

Hann áréttar að verkið verði ekki uppi nema tíu daga. „Það er hluti sýningarinnar 4 Parts Divid­ed sem er fjórlaga og hvert verk er sýnt í tíu daga,“ útskýrir hann.



Birgir Andrésson var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1995, þá sýndi hann mismunandi útgáfur íslenska fánans prjónaða í sauðalitunum. Seinna gerði hann verkið Sameinaðir stöndum vér, þar sem hann tefldi saman íslenska, bandaríska og breska fánanum, líka prjónuðum í sauðalitunum og lék sér þannig með það þjóðlega og alþjóðlega.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×