Innlent

Fjölskylda Andra Freys Sveinssonar sendir frá sér yfirlýsingu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Andri var í skemmtigarðinum Terra Mítica.
Andri var í skemmtigarðinum Terra Mítica.
Fjölskylda Andra Freys Sveinssonar, sem lést í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Terra Mítica, þann 7. júlí, hefur sent frá sér yfirlýsingu. Í henni kemur fram að Andri hafi setið aftast í rússíbananum Inferno þegar öll öryggistæki hafi gefið sig. Andri var með vini sínum og yngri systur í tækinu. Norskur læknir var einnig í tækinu og hann veitti fyrstu hjálp ásamt starfsfólki garðsins. Í garðinum var ekki sjúkrabíll til staðar og þurfti að bíða eftir honum í um 20-25 mínútur.

Andri lést svo í sjúkrabílnum.

Fjölskyldan hvetur fjölmiðla að vanda fréttaflutning sinn frá málinu. Yfirlýsingin í heild sinni er svo:

Við, foreldrar og stjúpforeldrar Andra Freys, viljum senda frá okkur eftirfarandi yfirlýsingu um þetta hörmulega slys sem varð í skemmtigarðinum Terra Mítica þann 7. júlí sl. Með þessarri yfirlýsingu viljum við biðja fréttamenn um að virða erfiðar aðstæður okkar og hætta að flytja óstaðfestar fréttir af málinu og þannig fara oftar en ekki með rangt mál.

Upphaflega ætlaði fjölskyldan að dvelja á Spáni í 28 daga. Á sjöunda degi var farið í skemmtigarðinn Terra Mítica rétt hjá Benidorm og var öll fjölskyldan búin að eyða deginum í garðinum.  Slysið varð í rússíbananum „Inferno“ en Andri Freyr sat aftast í tækinu ásamt vini sínum og yngri systur. Í lok ferðar, í ca. 15 metra hæð, gefa sig öll öryggistæki fyrir sætið og hann fellur úr tækinu. Í tækinu var norskur læknir og veitti hann fyrstu hjálp ásamt starfsfólki garðsins. Í garðinum var ekki sjúkrabíll til staðar og þurfti að bíða eftir honum í um 20-25 mínútur. Þegar sjúkrabíllinn kom loks lést sonur okkar inn í honum, á meðan hann var enn inn á svæðinu og var Andri Freyr því aldrei fluttur á sjúkrahús.

Börnin okkar öll sem voru með í ferðinni hafa nú verið flutt til Íslands til sinna foreldra til að fá aðstoð vegna þessa hræðilegu atburða sem þau urðu því miður vitni að. Faðir Andra Freys og stjúpmóðir urðu eftir í Torrevieja til að ganga frá málum og koma Andra Frey heim.

Viljum við biðja fjölmiðla að gæta ykkar framvegis hvað og hvernig fréttir ykkar eru settar  fram í fjölmiðlum ykkar því það hjálpar ekki syskinum og öðrum aðstandendum að lesa fréttir sem byggjast ekki á sannleikanum. Að lokum vilja fjölskyldurnar fá að koma þakklæti til allra sem hafa sýnt okkur samhug vegna þessa hræðilegu atburða og þeirra sem hafa greitt götu okkar, þó sér í lagi Skúla Mogensen, starfsfólki Wowair og Sveini Arnari Nikulásarsyni fulltrúa hjá félagi húseigenda á Spáni.

 


Tengdar fréttir

Maðurinn sem lést á Benidorm íslenskur

Íslendingurinn er sagður hafa kastast úr rússíbana í skemmtigarðinum Terra Mitica. Rússíbaninn kallast Inferno og fer hann á allt að 96 kílómetra hraða á klukkustund. Hann er 25 metra hár og snýst í 360 gráður á 60 kílómetra hraða. Talið er að öryggisbeltið sem notað var hafi verið gallað og ekki virkað sem skyldi.

Ekki um mannleg mistök að ræða

Framkvæmdastjóri Terra Mítica útilokar þann möguleika að banaslysið sem átti sér stað þar á mánudag hafi orsakast af mannlegum mistökum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×