Viðskipti erlent

Erlendir miðlar sýna íslenskum bjór úr hvalaeistum áhuga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjórinn er settur í samhengi við annan furðulegan bjór á borð við bjór frá New Belgium brugghúsinu með kókoshnetu- og karríbragði.
Bjórinn er settur í samhengi við annan furðulegan bjór á borð við bjór frá New Belgium brugghúsinu með kókoshnetu- og karríbragði. Vísir
Þorrabjórinn Hvalur 2 frá Steðja í Borgarfirði hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. BBC er meðal miðla sem fjalla um bjórinn en taðreykt eistu úr langreyðum eru notuð til að bragðbæta bjórinn.

„Eistun eru verkuð eftir gamalli íslenskri hefð, léttsöltuð og síðan taðreykt. Við lögðum mikið í þetta og vinnsluferillinn var langur,“ sagði Dagbjartur Arilíusson, einn eigenda brugghússins, í viðtali við Fréttablaðið á dögunum. Hann fer í sölu þann 23. janúar og er í raun arftaki þorrabjórs sem Steðji seldi í fyrra og innihélt hvalmjöl.

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands bannaði sölu bjórsins en mjölið innihélt meðal annars innyfli og þarma hvala. Nokkrum dögum síðar ákvað Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að leyfa sölu vörunnar. Viku síðar var hún uppseld eftir að fimm þúsund lítrar höfðu farið í gegnum verslanir ÁTVR.

Auk BBC er fjallað um bjórinn á vefsíðunni The Daily Meal. Þar er bjórinn settur í samhengi við annan furðulegan bjór á borð við bjór frá New Belgium brugghúsinu með kókoshnetu- og karríbragði.

Þá hefur skapast umræða um bjórinn á spjallborði áhugafólks um bjór.


Tengdar fréttir

Hvalabjórinn seldist upp í fyrstu vikunni

Þorrabjórinn Hvalur sem Brugghús Steðja framleiðir seldist upp hjá framleiðanda á innan við viku frá því bruggghúsinu var heimilt að selja bjórinn.

Hvalabjórbruggara hótað

Hvalabjórinn frá Brugghúsinu Steðja í Borgarfirði fær blendin viðbrögð. Dagbjartur Arilíusson segir að honum hafi borist hótanir í gær og í morgun vegna nýs bjórs sem fyrirtækið ætlar að gefa út á Þorra.

Taðreykt hvalseistu notuð í þorrabjórinn

Eigendur Brugghúss Steðja í Borgarfirði hafa þróað bjór sem inniheldur taðreykt eistu úr langreyðum. Eitt heilt eista í hverja bruggun. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir engar athugasemdir en það bannaði í fyrra sölu á bjór með hvalmjöli.

Fengu leyfi fyrir hvalabjórnum

Umhverfis- og auðlindaráðherra heimilaði í gær sölu og dreifingu á hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði.

Hvalabjór í fyrsta skipti á markað

Eflaust koma einhverjir til með að verða ósáttir, það er ákveðin áhætta og það er alveg meðvitað,“ segir eigandi brugghússins Steðja.

Sala á Hvalabjór heimiluð

Sala og dreifing á Hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði hefur verið heimiluð af Sigurði Inga Jóhannssyni umhverfis- og auðlindamála.

Hvalabjórinn bannaður

Framleiðsla á Hvalabjór hefur verið bönnuð af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Ástæðan er að framleiðsla á hvalamjöli uppfyllir ekki skilyrði laga um matvæli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×