Erlent

Ekkert lát á flóttamannastraumnum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Flestir flóttamannanna eru sýrlenskir Kúrdar.
Flestir flóttamannanna eru sýrlenskir Kúrdar. Vísir/AFP
Rúmlega 100 þúsund flóttamenn hafa nú leitað yfir landamærin til Tyrklands undan árásum Íslamska ríkisins í norðanverðu Sýrlandi.

Vísir greindi frá því í nótt að ríflega 66 þúsund hefðu leitað á náðir tyrkneskra yfirvalda það sem af var degi og ekkert lát virðist vera á flóttamannastraumnum.

Flestir þeir sem komu til landsins í dag voru frá bæjum umhverfis borgina Kobane í norðurhluta Sýrlands þar sem vígamenn Íslamska ríkisins hafa háð harða baráttu við stjórnarherinn frá því á fimmtudag.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir að aukin áhersla yrði lögð á að aðstoða flóttamenn svæðisins  en búist er við að hundruð þúsunda muni fylgja fordæmi þeirra sem nú þegar hafast við í búðum handan landamæranna.

Tyrknesk stjórnvöld segjast reiðubúin til að taka á móti öllum þeim sem þangað vilja leita en sýrlenskir Kúrdar hafa fram til þessa verið bróðurpartur flóttamannanna.

Þrátt fyrir að Tyrkir hafi verið viljugir til að hleypa fólki inn fyrir landamæri sín hafa þeir takmarkað flæði fólks frá landinu en margir Kúrdar hafa óskað eftir því að fá leyfi til að taka þátt í átökunum sem geisa nú í Sýrlandi.

Öryggisveitum og hópi Kúrda lenti saman er þeir síðarnefndu reyndu að komast yfir landamæri og beittu löggæslumenn táragas og kröftugum vatnsbyssum til að berja niður óeirðirnar.

Ekkert lát virðast vera á framgöngu Íslamska ríkisins fyrir botni Miðjarðarhafs en nú er talið að samtökin hafi lagt undir sig rúmlega 60 borgir í norðurhluta  Sýrlands frá því um miðja síðustu viku.


Tengdar fréttir

„Við elskum að drekka blóð“

Fullyrðingar vígamanns um að liðsmenn Íslamska ríkisins neyti blóðs fórnarlamba sinna hafa vakið mikinn óhug.

Stjórnarher Íraks nær Haditha stíflunni á sitt vald

Írakski stjórnarherinn segist hafa náð að flæma meðlimi Hins íslamska ríkis frá Haditha stíflunni og stórum svæðum þar í kring. Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á vígamenna á þessu svæði sem virðist hafa hjálpað stjórnarhernum í baráttunni.

Obama safnar liði gegn vígasveitunum

Bandaríkjaforseti hyggst útskýra hernaðaráform sín gegn Íslamska ríkinu, sem hefur vaðið uppi í Sýrlandi og Írak. Arababandalagið hefur samþykkt hernaðaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu, en lýsir þó ekki stuðningi við áform Bandaríkjanna.

Um 70 þúsund flúið til Tyrklands í dag

Sýrlenskir Kúrdar flykkjast nú yfir landamærin af ótta við árásir Íslamska ríkisins. Ákvörðun Tyrkja um að hleypa þúsundum Kúrda inn fyrir landamæri sín er talin til marks um hversu alvarleg ógn stafar af vígamönnum samtakanna.

Gerðu loftárásir á vígamenn í Írak

Bandaríkjamenn hafa síðustu tvo daga gert harðar loftárásir á bækistöðvar Hins íslamska ríkis í Írak nálægt Sinjar fjalli suðvestur af höfuðborginni Bagdad. Þetta eru fyrstu árásirnar sem gerðar eru eftir að Obama forseti lýsti því yfir að gefa þyrfti í í baráttunni við vígamennina sem nú ráða stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi.

Þriðji Vesturlandabúinn tekinn af lífi

"Þeir eru engir múslimar, þeir eru skrímsli,“ sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, um liðsmenn Íslamska ríkisins sem í gær birtu myndband sem sagt var sýna afhöfðun bresks hjálparstarfsmanns, David Haines að nafni.

Funda í París um ástandið í Írak og Sýrlandi

Johnn Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta kollega sína frá fjölda ríkja á fundi í París sem ætlað er að afla baráttunni við Hið íslamska ríki í Írak og í Sýrlandi fylgis.

Frakkar gera loftárásir í Írak

Stjórnvöld í Frakklandi ætla að verða við beiðni Íraka um aðstoð í baráttunni við Íslamska ríkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×