Menning

Ekkert hlutverk sem ég hef sungið jafnoft

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Benedikt er kominn úr stórborginni Berlín í hið kyrrláta umhverfi í Skálholti þar sem hann heldur jól með sínum nánustu og ætlar að ganga í það heilaga á gamlársdag.
Benedikt er kominn úr stórborginni Berlín í hið kyrrláta umhverfi í Skálholti þar sem hann heldur jól með sínum nánustu og ætlar að ganga í það heilaga á gamlársdag. Mynd/Bóas Kristjánsson
Það er ekkert hlutverk sem ég hef sungið eins oft og þetta,“ segir Benedikt Kristjánsson tenór um hlutverk guðspjallamannsins sem hann túlkar þegar Jólaóratóría Bachs verður flutt í Hallgrímskirkju á fimmtudag og föstudag í næstu viku.

Hann nefnir Þýskaland, Sviss, Austurríki, Holland og Noreg sem dæmi um lönd sem hann hefur sungið það í og kveðst fara á næsta ári til Bandaríkjanna sömu erinda.

Síðustu ár hefur hann líka yfirleitt sungið það á Íslandi þegar Jólaóratórían er flutt.

Nú verður Benedikt meðal annarra glæsilegra íslenskra einsöngvara af yngri kynslóðinni, þeirra Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur sópran, Hildigunnar Einarsdóttur alt og Fjölnis Ólafssonar bassa.

Þau þrjú tilheyra öll Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju sem lýkur 20 ára afmælisfagnaði sínum með flutningi óratóríunnar og ekki má gleyma að geta Alþjóðlegu barokksveitarinnar í Hallgrímskirkju með konsertmeistarann Tuomo Suni. Það er að sjálfsögðu Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju, sem stjórnar herlegheitunum.

Benedikt hefur slegið í gegn sem guðspjallamaður í passíum J.S. Bach og öðrum óratóríum víða um Evrópu og er nú eftirsóttur um allan heim. Spurður hvort rödd hans sé einstök á heimsvísu svarar hann „Ja, ég get ekki notað þau orð um sjálfan mig, það væri gaman ef einhver annar mundi segja þau.

Ég vandist því að hlusta á tónlist Bachs heima hjá mér frá barnæsku og var því búinn að kynnast henni áður en ég byrjaði að syngja. Um leið og ég hóf söngnám var ég nokkuð viss um að hún yrði það sem ég fengist við í framtíðinni.“ 

 Benedikt lauk námi við tónlistar­háskólann í Berlín í júlí 2015 með fyrstu ágætiseinkunn og þótt hann teljist ungur í sínum bransa, fæddur 1987, á hann þegar glæstan feril og hefur unnið með mörgum virtum stjórnendum. Árið 2011 hlaut hann 1. verðlaun í alþjóðlegri Bach-söngkeppni í Greifswald og líka verðlaun áheyrenda og fékk einnig áheyrendaverðlaunin í alþjóðlegu Bach-keppninni í Leipzig sumarið 2012. Hann var líka valinn Söngvari ársins í sígildri og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016.



Schola cantorum stendur fyrir sannkallaðri barokksveiflu í Hallgrímskirkju næsta fimmtudag og föstudag.
Nú býr Benedikt í Berlín, með unnustunni Angelu Árnadóttur, ungri dóttur og stjúpsyni og segir þá borg góðan stað fyrir söngvara enda mikið að gerast í klassísku tónlistarsenunni í Þýskalandi og líka í Hollandi. „Ég er að syngja á yfir 20 tónleikum í Hollandi á næsta ári og þangað er tiltölulega stutt að fara frá Berlín,“ útskýrir hann.

Skálholt eru gamlar heimaslóðir Benedikts. Þangað er hann kominn til að halda jól með sínum nánustu, foreldrar hans eru Margrét Bóasdóttir söngkona og séra Kristján Valur Ingólfsson. Svo ætla þau Benedikt og Angela líka að ganga í það heilaga á gamlársdag í sjálfri Skálholtsdómkirkju. „Pabbi ætlar að gefa okkur saman og líka sjá um að steikja lærin fyrir veisluna. Hann verður því í stóru hlutverki þennan dag en fær víst lítið borgað,“ segir Benedikt hlæjandi.

Eftir áramótin verður tekinn upp söngur Benedikts með Karlakórnum Fóstbræðrum í lögum sem hljómuðu á hundrað ára afmælistónleikum kórsins fyrir nokkrum vikum.  Svo flýgur hann til Berlínar og er bókaður í Stuttgart og Pittsburg í mars en í apríl er komið að tónleikaferðalagi um Bandaríkin þar sem hann mun meðal annars syngja hlutverk guðspjallamannsins í Jóhannesarpassíu Bachs á tónleikum í Walt Disney Hall í Los Angeles.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. desember 2016






Fleiri fréttir

Sjá meira


×