Innlent

Eini sérfræðingurinn á leið úr landi vegna ástandsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Konur sem greinast eftir áramót munu berja í borðið og vilja fá að fljúga út til að gangast undir aðgerð. Hvað mun það kosta okkur?“ spyr Anna Sigríður Arnardóttir.
"Konur sem greinast eftir áramót munu berja í borðið og vilja fá að fljúga út til að gangast undir aðgerð. Hvað mun það kosta okkur?“ spyr Anna Sigríður Arnardóttir. Vísir/Getty
„Mér verður mjög heitt í hamsi þegar ég hugsa til þess að hafa sjálf fengið framúrskarandi þjónustu sem konur sem greinast eftir áramót munu ekki fá,“ segir Anna Sigríður Arnardóttir sem greindist með brjóstakrabbamein á árinu. Anna Sigríður gekkst undir aðgerð þar sem æxli var fjarlægt úr öðru brjósti hennarog það byggt upp á sama tíma með eigin líkamsvef. Þannig fór hún í eina aðgerð en ekki tvær eða þrjár líkt og stefnir í að íslenskar konur með brjóstakrabbamein þurfi að sætta sig við á nýju ári.

Ástæðan er sú að skurðlæknirinn sem framkvæmdi fyrrnefnda brjóstauppbyggingaraðgerð flytur úr landi um áramótin. Hann líkt og fleiri hafa fengið sig fullsadda af stöðu í heilbrigðismálum hér á landi. Eftir brotthvarf hans verða tveir læknar eftir, báðir á sjötugsaldri, sem sinna brjóstakrabbameinsaðgerðum. Þó ekki fyrrnefndum brjóstauppbyggingaaðgerðum.

„Við vitum til þess að einn Íslendingur er í sérnámi í brjóstaskurðlækningum. Við vonumst til þess að hann flytji heim en það verður í fyrsta lagi eftir fimm ár eða svo,“ segir Helgi Kjartan Sigurðsson, formaður Skurðlæknafélags Íslands. Þá verða fyrrnefndir tveir læknar sem sinna krabbameinsaðgerðum 69 ára og 70 ára.

Anna Sigríður bendir á að geislalæknirinn og lyflæknirinn sem sinni henni séu sömuleiðis að komast á aldur á næstu fimm árum. Aðeins sex krabbameinslæknar, þ.e. þeir sem sinni lyfja-og geislahluta meðferðar, séu á landinu en þeir þyrftu að vera 14-15 til að allt væri eðlilegt.

„Þetta snýst ekki bara um að læknar flytji úr landi. Hvað ef einhver verður veikur? Það eru svo fáir að sinna þessu. Þá værum við öll í vanda stödd.“

Anna Sigríður Arnardóttir.
Konur munu vilja fljúga út í aðgerð

Anna Sigríður minnir á að 220 konur greinist á ári hverju með brjóstakrabbamein hér á landi. Níunda hver íslensk kona muni greinast með krabbamein á lífsleiðinni. Ísland sé raunar að komast í þann flokk þjóða með hæstu tíðni brjóstakrabbameins í heiminum.

„Tíðnin er hæst hér á landi og í Ísrael. Það er þó óvíst hvers vegna,“ segir Anna Sigríður. Hún segir miklu muna á alla kanta að geta farið í eina aðgerð en ekki tvær eða þrjár. Hún minnir á að meiri kostnaður fylgi fleiri aðgerðum. Fjölgun aðgerða geti aukið kostnað úr einni milljón upp í þrjár eða fjórar milljónir króna. Þá fylgi hverri svæfingu viss áhætta auk þess sem ferlið taki miklu lengri tíma.

Að óbreyttu kemur upp sú staða um áramótin að enginn læknir verður á landinu til að framkvæma brjóstauppbyggingaraðgerðir.

„Konur sem greinast eftir áramót munu berja í borðið og vilja fá að fljúga út til að gangast undir aðgerð. Hvað mun það kosta okkur?“ spyr Anna Sigríður.

Anna Sigríður hrósar meðferðinni sem hún hefur fengið hér á landi eftir að hún greindist með krabbamein.Vísir/Getty
Haldast í hendur í kringum tjörnina

Anna Sigríður og félagar hjá Brjóstaheillum - samhjálp kvenna standa fyrir gjörningi við Tjörnina í Reykjavík í dag í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn brjóstakrabbameini. Mæting er við Hljómskálann klukkan 17:30 og verður gengið í kringum Tjörnina. Markmiðið er að fá nógu marga þátttakendur til að geta haldist í hendur umhverfis Tjörnina.

Hún minnir á að krabbamein snerti alla. Einn af hverjum þremur Íslendingum greinist með krabbamein af einni eða annarri gerð á lífsleiðinni. Hvað brjóstakrabbamein varði gæti mamma þín, konan þín eða frænka þín greinst á morgun.

„Mér finnst ég hafa fengið frábæra þjónustu, úrvalsmeðferð og ég vil að aðrar konur sitji við sama boð. Við megum ekki leggja árar í bát,“ segir Anna Sigríður og skorar á stjórnvöld að gera eitthvað róttækt varðandi stöðu heilbrigðismála.

Helgi Kjartan segir að fundir skurðlækna með ríkissáttasemjara frá því í júní hafi engu skilað. Ekkert sé að mjakast í viðræðum þeirra en næsti fundur fari fram á föstudag. Að óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir skurðlækna mánudaginn 4. nóvember. Verkfallsaðgerðir almennra lækna hefjast viku fyrr eða 27. október.


Tengdar fréttir

Læknar boða til verkfalls

Yfir 80% af atkvæðisbærum læknum tók þátt í kosningunni og yfir 95% þeirra samþykktu fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir sem gert er ráð fyrir að hefjist þann 27. október næstkomandi.

„Spítali verður ekki rekinn án lækna“

Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum hefur þungar áhyggjur af yfirvofandi verkföllum lækna og skurðlækna. Heilbrigðisráðherra segir að þjóðarsátt þurfi að nást um að læknastéttin verði samkeppnishæf við nágrannaríkin.

Lýsir yfir áhyggjum af yfirvofandi verkfalli lækna

Stjórn hjúkrunarráðs Sjúkrahússins á Akureyri segir að ljóst sé að starfsemi heilbrigðisstofnana muni raskast og aukið álag verða á aðra starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×