Erlent

Efasemdarmaður um loftslagsbreytingar tekur við Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Scott Pruitt í Trump Tower í gær.
Scott Pruitt í Trump Tower í gær. Vísir/Getty
Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að Scott Pruitt muni taka við sem yfirmaður Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna.

Pruitt er dómsmálaráðherra Oklahoma og er þekktur bandamaður olíuiðnaðarins. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í lögsóknum gegn reglugerðum stofnunarinnar gegn losun gróðurhúslofttegunda. Þá hefur hann einnig gagnrýnt stefnu Obama í loftslagsmálum. BBC greinir frá.

Í tilkynningunni um ákvörðun sína sagði Trump að Umhverfisstofnunin hefði of lengi eytt skattpeningum Bandaríkjamanna í „stjórnlausa orkustefnu sem hefur rústað milljónum starfa.“

Þá sagði hann einnig að Pruitt myndi snúa þessari þróun við og „koma aftur á grunnstefnu umhverfisstofnunarinnar um að halda loftinu og vatninu okkar hreinu og öruggu.“

Reglugerðir stofnaninnar óþarfi

Pruitt hefur nokkrum sinnum höfðað mál gegn Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna, nú síðast vegna áætlana Obama ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum. Hann sagði áætlanirnar vera aðför alríkisstjórnarinnar að sjálfstæði ríkjanna í orkumálum í tilraun til þess að loka verksmiðjum knúnum áfram með kolum.

Í yfirlýsingu sinni vegna tilnefningarinnar sagði Pruitt að Bandaríkjamenn væru „þreyttir á að sjá milljörðum dollara eytt í óþarfa reglugerðir Umhverfisverndarstofnunarinnar.“

Þá skrifaði hann grein í National Review í maí síðastliðnum þar sem hann sagði að umræðunni um loftslagsbreytingar væri síður en svo lokið.

„Vísindamenn eru enn ósammála um hversu umsvifamikil hlýnun jarðar er og að hversu miklu leyti hún er af mannavöldum,“ skrifaði hann þá.

Raunin hins vegar sú að meirihluti vísindamanna sem sérhæfir sig í loftslagsmálum er sammála um að kolefnislosun af mannavöldum sé einn af lykilvöldum loftslagshlýnunar og að áhrif loftslagsbreytinga verði alvarleg.


Tengdar fréttir

Repúblikanar taka illa í áform Trumps

"Ég vil ekki lenda í einhvers konar viðskiptastríði,“ segir Kevin McCarthy, leiðtogi þingmeirihluta Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjanna.

Trump fundaði með Gore um loftslagsmál

Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjannai, fundaði í dag með Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna og dóttur hans Ivönku Trump, um aðgerðir í loftslagsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×