Erlent

Duterte snýr sér til Kína

Samúel Karl Ólason skrifar
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, og Zhang Gaoli, aðstoðarforsætisráðherra Kína.
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, og Zhang Gaoli, aðstoðarforsætisráðherra Kína. Vísir/AFP
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, tilkynnti í dag að Filippseyjar hefðu slitið sig frá Bandaríkjunum. Þess í stað ætlar Duterte að snúa sér til Kína, þar sem hann er nú staddur. Kína og Filippseyjar hafa samþykkt að leysa deilur sínar um Suður-Kínahaf með viðræðum.

Duterte sagði Bandaríkin hafa „tapað“ og að hann myndi mögulega einnig snúa sér mynda bandalag við Rússland.

Þetta sagði Duterte á blaðamannafundi með Zhang Gaoli, aðstoðarforsætisráðherra Kína. Skömmu áður hafði Duterte fundað með Xi Jingping, leiðtoga Kína.

„Ég hef snúið mér að ykkar hugmyndafræði og ég mun mögulega fara til Rússlands líka og segja Putin að við séum þrír á móti öllum heiminum. Kína, Filippseyjar og Rússlands. Það er eina leiðin,“ sagði Duterte.

Undir stjórn fyrrum forseta Filippseyja, Benigno Aquino, neituðu Filippseyjar að samþykkja ólögmætt tilkall Kína til Suður-Kínahafs, þar sem þeir hafa byggt fjölmargar eyjur, flugvelli og flotastöðvar.

Árið 2012 hertóku Kínverjar Scarborought skerið sem var innan efnahagslögsögu Filippseyja.

Á blaðamannafundinum sagði Duterte að Filippseyjar hefðu grætt lítið á áratugalöngu bandalagi sínu við Bandaríkin. Þá kallaði hann Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, aftur hóruson.

Duterte er verulega ósáttur við yfirvöld Bandaríkjanna eftir að Washington, ásamt Sameinuðu þjóðunum, ESB og mannréttindasamtökum, gagnrýndu Duterte fyrir „átak“ hans gegn fíkniefnum.

Þúsundir meintra fíkniefnasala og neytanda hafa verið drepnir af lögreglu og vopnuðum gengjum borgara í Filippseyjum á undanförnum mánuðum.


Tengdar fréttir

Sáttur með Hitler-líkingu

Mannréttindasamtök hafa furðað sig á ummælum Rod­rigos Duterte, forseta Filippseyja, sem stærir sig af því að láta drepa fíkniefnaneytendur og hefur ekkert á móti því að sér sé líkt við Hitler.

Enn versnar samband Duterte og Bandaríkjanna

Hinn umdeildi forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, lýsti því yfir í gær að fyrirhuguð heræfing í landinu þar sem Bandaríkjamenn og Filippseyski herinn taka þátt verði þær síðustu af slíkum toga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×