Viðskipti erlent

Daimler gæti hafa svindlað á útblástursprófunum

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Daimler AG er framleiðandi Mercedes bíla, meðal annarra.
Daimler AG er framleiðandi Mercedes bíla, meðal annarra. Vísir/Myndasafn
Mercedes framleiðandinn hefur sætt rannsóknar í Bandaríkjunum undanfarið, og fundist hefur hugbúnaður í bílum framleiddum hjá fyrirtækinu sem gæti hafa aðstoðað við að standast útblástursprófanir. Reuters segja frá.

Árið 2015 komst upp að Volkswagen hefði sett upp leynilegan hugbúnað í 580.000 díselbíla sinna í Bandaríkjunum, sem gerði bílunum kleift að losa 40 sinnum meira magn mengunarvaldandi lofttegunda en löglegt er á vegum úti, en standast á sama tíma allar útblástursprófanir hjá eftirlitsaðilum. Í kjölfar þess hafa auknar rannsóknir verið gerðar á útblæstri díselbíla hjá öðrum fyrirtækjum.

Í ljós kom að hugbúnaður bíla Daimler býður meðal annars upp á að slökkt sé á útblásturshreinsun eftir að ekið hefur verið 26 kílómetra. Einnig býður hugbúnaðurinn upp á að útblásturhreinsunarkerfi hans þekki hvenær verið er að prófa bílinn eftir hraða eða hröðun. Bild am Sonntag sem fjallaði upprunalega um málið hefur einnig undir höndunum tölvupósta frá verkfræðingum Daimler sem drógu lögmæti slíkra möguleika í hugbúnaði í efa.

Talsmaður Daimler hefur lítið viljað tjá sig um málið, segir þau gera hvað þau geta til að aðstoða yfirvöld Bandaríkjanna við rannsókn málsins og að þau hafi heitið fullum trúnaði við Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×