Viðskipti innlent

Costco ætlar ekki að takmarka fjölda meðlima

Haraldur Guðmundsson skrifar
Verktakar ÞG Verks undirbúa nú opnun Costco.
Verktakar ÞG Verks undirbúa nú opnun Costco. Vísir/Eyþór
Costco á Íslandi ætlar ekki að takmarka fjölda þeirra sem geta keypt einstaklings- eða fyrirtækjaaðild að vöruhúsi bandaríska fyrirtækisins í Kauptúni í Garðabæ. Enn er stefnt að opnun þess í lok maí.

Þetta staðfestir Steve Pappas, aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu, í skriflegu svari við fyrirspurn Markaðarins.

Steve Pappas, varaforstjóri Costco í Evrópu.
„Við teljum að 323.000 meðlimir væri góð tala,“ segir Pappas og vísar augljóslega í tölur yfir mannfjölda á Íslandi.

„En í fullri alvöru þá erum við ekki með einhvern kvóta eða þak á meðlimafjölda. Miðað við íbúafjölda Reykjavíkur er ólíklegt að við munum sprengja 13.300 fermetra húsnæði okkar í fyrirsjáanlegri framtíð. Vonandi munu flestar fjölskyldur og minni fyrirtæki sjá sér hag í meðlimaaðild og ganga í klúbbinn.“

Pappas, sem einnig ber ábyrgð á rekstri Costco á Bretlandi, Spáni og í Frakklandi, sagði í samtali við Vísi þann 24. febrúar að hann hefði aldrei á sínum 26 árum hjá Costco séð eins mikla eftirvæntingu og undirtektir á neinum nýjum markaði og Íslandi. Varaforstjórinn vildi þó ekki svara því hversu margir einstaklingar eða fyrirtæki höfðu þá keypt aðild að Costco. Fyrirtækið hafði þá nýverið opnað skráningarstöð á lóð sinni í Kauptúni. Þar geta einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja keypt aðild að vöruhúsinu og var talsverð umferð inn á svæðið rétt eftir opnun. Aðgangur að verslun Costco verður einungis opinn meðlimum. Pappas segir enn stefnt að opnun í lok maí en á heimasíðu fyrirtækisins segir að vöruhúsið verði opnað um mitt ár 2017. 


Tengdar fréttir

Costco byrjað að ráða starfsfólk

Verslunarrisinn leitar að starfsfólki í 9 deildir fyrirtækisins, allt frá bakaríinu til hjólbarðaverkstæðisins.

Costco opnar skráningarstöð í Kauptúni

Costco á Íslandi opnaði skráningarstöð á lóð fyrirtækisins í Kauptúni í Garðabæ um síðustu helgi. Einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja geta þar keypt aðild að vöruhúsinu og var talsverð umferð inn á svæðið á sunnudag þegar blaðamaður átti leið framhjá.

Heildsalar lækka verð vegna komu Costco

Ölgerðin og Sláturfélag Suðurlands (SS) vinna að samningum við erlenda birgja um lægra innkaupsverð vegna innreiðar Costco hingað til lands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×