Íslenski boltinn

Bónusgreiðslur Geirs tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá KSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tveggja mánaða bónusgreiðslur sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fékk vegna vinnu sinnar á EM 2016 voru tilkomnar vegna aukaálags í tengslum við framkvæmdastjóraskipti hjá Knattspyrnusambandinu. Þetta kom fram í viðtali sem Hjörtur Hjartarson tók við Geir í útvarpsþættinum Akraborginni í dag.

Þórir Hákonarson lét af störfum sem framkvæmdastjóri KSÍ í mars á síðasta ári. Við starfi hans tók Klara Bjartmarz sem hefur lengi starfað fyrir Knattspyrnusambandið. Geir segir að það hafi komið í hans hlut að setja Klöru inn í nýja starfið.

„Það verður að líta til þess að það urðu gríðarlega miklar breytingar, og óvæntar breytingar, á árinu sem þýddu að ég þurfti að sinna miklu stærra verkefni heldur en ráð var gert fyrir þegar það urðu framkvæmdastjóraskipti. Ég held að það sé forsendan í því. Ég þurfti að leiða nýjan starfsmann inn í starfið. Það var enginn annar til þess,“ sagði Geir. Hann segir að þrátt fyrir að Klara sé reynslumikil hafi þurft að setja hana inn í þá málaflokka og verkefni sem hvíla á herðum framkvæmdastjórans.

Lítið brot af þeim fjármunum sem fóru í rekstur KSÍ.

„Þetta var ekki beint í mínum höndum,“ sagði Geir um bónusgreiðslurnar sem fjárhagsnefnd KSÍ lagði til. „Eins og ávallt reyni ég að gera mitt besta og þigg fyrir þá umbun sem er ákvörðuð. Þetta er lítið, lítið brot af þeim fjármunum sem fóru í rekstur KSÍ. Kannski er lærdómurinn sá að fjölga starfsmönnum og fá sérstaka starfsmenn til að vinna að EM-verkefninu.“

Sumir hafa velt fyrir sér hvaða hlutverki Geir gengdi úti í Frakklandi á meðan á EM stóð.

„Mitt hlutverk fyrir KSÍ er ávallt það sama, að stýra Knattspyrnusambandinu alla daga ársins, sama hvar ég er staddur. Stóran hluta af árinu er ég staddur erlendis en er í stöðugu síma- og tölvusambandi við mitt fólk. Ég var í fyrirsvari fyrir KSÍ úti í Frakklandi og var undir miklu álagi frá ýmsum áttum. Ég vann bara hefðbundin störf fyrir KSÍ á sama tíma,“ sagði Geir. En af hverju fékk hann tvo mánuði greidda í bónus en aðrir starfsmenn KSÍ bara einn?

Mikið álag

„Það byggist ekki beint á EM í Frakklandi. Kjarninn í því kom til vegna þeirra breytinga sem urðu á skrifstofu KSÍ og því mikla álagi sem fluttist yfir á mig. Það var mjög reyndur framkvæmdarstjóri sem hætti með skömmum fyrirvara og við fengum nýjan framkvæmdarstjóra. Og alveg sama hver það var þurfti ég að taka miklu meiri þátt í daglegri starfsemi KSÍ á nýjan leik. Það tekur 1-2 ár að koma sér inn í svona viðamikið starf,“ svaraði Geir.

Næsta ársþing KSÍ fer fram í febrúar á næsta ári. Geir ætlar að bjóða sig fram til endurkjörs en talsverðar líkur eru á því að hann fái mótframboð frá Guðna Bergssyni, fyrrum landsliðsfyrirliða, sem liggur nú undir feldi og íhugar hvort hann eigin að bjóða sig fram. En hvernig líst Geir á mögulegt mótframboð?

Reynsla mín og þekking er dýrmæt fyrir KSÍ

„Bara vel. Ég er tilbúinn að vinna að framgangi íslenskrar knattspyrnu eins og ég hef gert svo lengi. Ég hef látið verkin tala og það eru spennandi tímar framundan. Sú reynsla og þekking sem ég hef byggt er dýrmæt fyrir KSÍ. Ég hef nóg að gefa ennþá. Forverar mínir í starfi voru tvöfalt lengur en ég. Ég get alveg séð fyrir mér að halda áfram en það er í höndum aðildarfélaganna,“ sagði Geir og bætti því við að fréttir um mögulegt framboð Guðna hafi komið sér á óvart.

„Það kom mér á óvart að hann skyldi hafa hug á þessu núna, bara vegna þess að resktur KSÍ gengur frábærlega, bæði innan vallar og utan. En þetta eru opin og lýðræðisleg samtök, svo opin að menn geta nánast komið inn af götunni og boðið sig fram. Það er engin takmörkun,“ sagði Geir sem hefur verið formaður KSÍ frá 2007. Hann hefur starfað hjá KSÍ frá 1993, eða í 23 ár.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Guðni íhugar að bjóða sig fram til formanns KSÍ

Guðni Bergsson, fyrrverandi fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, íhugar að bjóða sig fram til formanns KSÍ á næsta ársþingi Knattspyrnusambandsins í í febrúar á næsta ári.

Gert var ráð fyrir auknum launakostnaði

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að sambandið hafi reiknað með auknum launakostnaði í kringum Evrópumótið í fótbolta hvort sem það yrðu ráðnir fleiri starfsmenn eða núverandi starfsmenn fengju aukamánuð greiddan vegna álags sem fylgdi mótinu.

Geir gríðarlega stoltur af sínu starfi hjá KSÍ

Gamli landsliðsfyrirliðinn Guðni Bergsson íhugar nú að fara í framboð til formanns KSÍ. Núverandi formaður, Geir Þorsteinsson, er þó hvergi banginn og er klár í slag við Guðna fari hann fram.

EA Sports hafði samband við KSÍ vegna FIFA 18

Tölvuleikjafyrirtækið EA Sports hafði samband við Geir Þorsteinsson, formann KSÍ, um viðræður um að íslenska landsliðið yrði með í næstu útgáfu af tölvuleiknum vinsæla FIFA 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×