Viðskipti innlent

Birkir og Elmar sendir í leyfi

Valur Grettisson skrifar
Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson hafa verið settir í leyfi frá störfum sínum í Íslandsbanka samkvæmt heimildum fréttastofu.

Báðir störfuðu hjá Íslandsbanka, þegar þeir voru ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis í nóvember árið 2007. Þeir störfuðu einnig hjá Glitni þegar meint brot áttu sér stað.

Það var Fréttablaðið sem greindi fyrst frá málinu í morgun, en þar kom fram að auk Birkis og Elmars eru þeir Jóhannes Baldursson og Magnús Arnar Arngrímsson ákærðir í málinu.

Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu um málefni starfsmannanna í morgun, sagði að bankinn gæti ekki tjáð sig opinberlega um málefni einstakra starfsmanna. Samkvæmt reglum bankans eiga þó menn sem eru ákærðir í svona málum að fara í leyfi á meðan staða þeirra er metin og mál þeirra skýrast.

Orðrétt sagði svo í svari bankans: „Rétt er að benda á að gert er ráð fyrir því að bankinn geti á einhverjum tímapunkti endurskoðað afstöðu sína varðandi stöðu starfsmanna.“


Tengdar fréttir

Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar

Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum.

Birkir samdi við slitastjórn Glitnis

Birkir Kristinsson samdi við slitastjórn Glitnis um að endurgreiða tugmilljóna hagnað sinn af hlutabréfaeign í bankanum, sem saksóknari telur ólögmætan. Honum hefur því ekki verið stefnt til greiðslu skaðabóta eins og tveimur öðrum sakborningum.

Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis.

Lárus og Guðmundur segjast ekki hafa samþykkt lánið

Birkir Kristinsson tók 3,8 milljarða lán til að kaupa hlutabréf í Glitni, svo að bankinn gæti gert upp framvirkan samning við Gnúp, sem Birkir átti 28% í. Lárus Welding segist ekki hafa komið nálægt lánveitingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×