Viðskipti innlent

Bilanir í Bombardier-vél meiri en búast mátti við

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugfélag Íslands hefur þrívegis á skömmum tíma neyðst til að taka nýju Bombardier-flugvélina úr áætlun vegna bilunar. Framkvæmdastjóri Flugfélagsins, Árni Gunnarsson, segir byrjunarörðugleikana meiri en þeir áttu von á. 

Vélin var á leið til Egilsstaða í gær þegar henni var snúið við vegna bilunar í vökvakerfi. Það varð til þess að flug til Akureyrar í gærkvöldi raskaðist einnig.

„Þetta eru óþægindi fyrir farþega okkar og við reynum að leysa úr þeim eins og við getum. En þetta er ákveðið tjón að þurfa að vera með vél á jörðu niðri. Það hjálpar ekki til með reksturinn. Við höfum aðrar vélar til að spila úr en óneitanlega hefur þetta áhrif á áætlunina,“ sagði Árni í viðtali við Stöð 2 í skýli Flugfélagsins þar sem Bombardierinn var til viðgerðar í dag. 

Stóra systir, Bombardier Q400, í loftinu við komuna til Reykjavíkur þann 24. febrúar síðastliðinn. Litla systir, Q200, við Flugfélagsafgreiðsluna. Sú stærri tekur 72-76 farþega en sú minni 37 farþega.Vísir/Vilhelm.
Þetta er í þriðja sinn á þremur vikum sem Flugfélagið neyðist til að taka Bombardierinn úr notkun vegna bilunar. Í einu tilviki þurfti vélin að lenda í Keflavík vegna þess að vængbörð voru ekki rétt stillt og öðru tilviki þurfti að skipta um rafal í hreyfli. 

„Þetta eru aðeins meiri brekkur en við áttum von á. Það er auðvitað samt þannig að við innleiðingu á nýrri vélartegund fyrir okkar rekstur þá má búast við að það séu einhverjir byrjunarörðugleikar. En þetta hefur óneitanlega verið meira en við áttum von á.“ 

Rifjað hefur verið upp að SAS-flugfélagið hætti notkun þessarar tegundar árið 2007 eftir að hjólabúnaður gaf sig í þremur vélum félagsins. Vélarnar þrjár sem Flugfélagið fær eru orðnar fimmtán ára gamlar. 

-Voruð þið að kaupa köttinn í sekknum? 

„Nei. Við teljum ekki svo vera. Það eru yfir 450 svona vélar í rekstri í heiminum í dag og þær eru í fullri framleiðslu. Þær hafa reynst mjög vel. Það voru þarna byrjunarörðugleikar, eins og þú nefndir. Það eru orðin tíu ár síðan komið var í veg fyrir þá. Þannig að við teljum að þetta séu mjög áreiðanlegar og hagkvæmar vélar og góðar í rekstri. En óneitanlega erfitt að byrja svona en við teljum að við séum að komast fyrir vind með þetta,“ segir Árni. 

Hann segir von á Bombardier-vél númer tvö eftir hálfan mánuð og þriðja vélin sé væntanleg um miðjan maímánuð. Gert sé ráð fyrir að rekstri Fokker-vélanna ljúki í aprílmánuði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×