Lífið

Bein útsending: Spjallað við Siggu Kling á Facebook Live

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir september birtust í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fer af stað með skemmtilega nýjung í dag en hægt verður að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live klukkan 13. Lesendum býðst þar að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn.

Uppfært kl. 13.30


Útsendingunni er lokið og þökkum við hinum fjölmörgu lesendum sem tóku þátt í henni með okkur. Í spilaranum hér ofan má horfa á upptöku af útsendingunni þar sem Sigga Kling svarar spurningum. Þá er einnig hægt að skoða ummælin á Facebook-síðu Vísis.

Skjáskot úr útsendingunni.

Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.

Septemberspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir septembermánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×