Erlent

Bandarískir hermenn féllu í átökum við ISIS

Samúel Karl Ólason skrifar
Bandarískur hermaður í Afganistan.
Bandarískur hermaður í Afganistan. Vísir/AFP
Tveir Bandarískir hermenn féllu í átökum við vígamenn Íslamska ríkisins í Afganistan í dag. Nánar tiltekið áttu átökin sér stað í Nangarhar-héraði þar sem einn hermaður féll fyrr í mánuðinum. Árás var gerð gegn IS Khorasan, sem er nafn deildar ISIS í Afganistan.

Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna segja árásina hafa verið gerða í samvinnu við heimamenn sem hafi verið með í för. Hún var gerði nærri staðnum þar sem Bandaríkin vörpuðu gríðarstórri sprengju fyrr í mánuðinum.

Talsmaður ríkisstjóra Nangarhar sagði BBC að um 40 vígamenn hefðu verið felldir og þrettán hefðu verið handsamaðir. Bandaríkin telja um 700 vígamenn halda til héraðinu, en heimamenn áætla að þeir séu um 1.500.

Einn bandarískur hermaður til viðbótar særðist lítillega í átökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×