Erlent

Átök hafin aftur í Aleppo

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Átök eru hafin aftur í Aleppo og hefur brottflutningur almennra borgara verið stöðvaður. Rússar og Tyrkir höfðu samið um vopnahlé en svo virðist sem að stjórnvöld Sýrlands hafi neitað samningnum. Í stað brottflutnings uppreisnarmanna frá Alleppo vildu stjórnvöld fá að flytja á brott sína hermenn frá stöðum sem uppreisnarmenn sitja um í Sýrlandi.

Til stóð að flytja þúsundir frá borginni í morgun, en brottflutningurinn hófst aldrei. Nota átti um tuttugu rútur til að flytja fólk, en þeim var aldrei ekið af stað. Fjölda fólks hefur þó tekist að flýja átökin.

Fregnir af borist af loft- og stórskotaliðsárásum og eru almennir borgarar sagðir hafa látið lífið, bæði á yfirráðasvæði uppreisnarmanna og á yfirráðasvæði stjórnvalda.

Rússar segja að árásir stjórnarliða séu viðbrögð við árásum uppreisnarmanna. Samkvæmt Reuters fréttaveitunni sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, að mótspyrnu uppreisnarmanna myndi líklegast ljúka á næstu tveimur eða þremur dögum.






Tengdar fréttir

Hermenn myrða íbúa á heimilum í Aleppo

Stjórnarherinn hefur náð völdum í borginni Aleppo. Hermenn eru sagðir ryðjast inn á heimili almennra borgara og myrða þá. Sameinuðu þjóðirnar fordæma þá harkalega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×