Viðskipti innlent

ASÍ gagnrýnir stjórnvöld harðlega: „Verkalýðshreyfingin mun ekki sætta sig við að stjórnvöld skili auðu“

ingvar haraldsson skrifar
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands vísir/vilhelm
„Verkalýðshreyfingin mun ekki sætta sig við að stjórnvöld skili auðu og leggi enn og aftur byrðarnar á herðar launafólks,“ segir í tilkynningu frá miðstjórn Alþýðusambands Íslands sem gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum sem fram kemur í þingsályktun um fjármálaætlun fyrir árin 2017-2021.

„Í áætluninni er hvorki að finna merki þess að efnahagsstefna stjórnvalda til næstu ára muni treysta efnahagslegan stöðugleika né undirbyggja félagslega velferð og aukinn jöfnuð í samfélaginu,“ segir í tilkynningunni.

ASÍ segir slaka vera í ríkisfjármálum samhliða vaxandi spennu í hagkerfinu og uppgangi á vinnumarkaði sem muni ýta undir ofþenslu og óstöðugleika og vinna gegn peningamálastefnunni. Það muni auka verðbólguþrýsting og hækka vexti.

„Samhliða þessu er misskipting aukin og dregið úr félagslegum stöðugleika með því að veikja mikilvæg stuðningskerfi á borð við barna- og húsnæðisbótakerfin. Brýnar velferðarumbætur eins og uppbygging félagslegs húsnæðiskerfis, innleiðing nýs húsnæðisbótakerfis og endurskoðun almannatrygginga eru án fullnægjandi fjármögnunar í áætluninni.“

Fjármögnun heilbrigðiskerfisins ekki tryggð

Þá sé ekki tryggð nauðsynleg fjármögnun á þjónustu heilbrigðiskerfisins og lækkun á gjaldtöku sjúklinga. „Í allt of ríkum mæli byggir framtíðarsýn stjórnvalda í velferðarmálum á þeirri forsendu, að jöfnun byrða eigi að afmarkast við viðkomandi hópa. Þannig á að fjármagna þak á útgjöld til heilbrigðismála með hækkun á almenna þjónustu, fjármagna á félagslegt húsnæðiskerfi og húsnæðisbótakerfi með skerðingum á öðrum þáttum velferðarkerfisins og breytingar á almannatryggingakerfinu eiga í of ríkum mæli að fjármagnast með auknum tekjutengingum.“

ASÍ segir áætlunina ekki samræmast samkomulagi ríkisins við aðila vinnumarkaðarins. „Þessi stefnumörkun stjórnvalda styður á engan hátt við þau markmið sem sett voru fram í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins, um bætt og breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Rammasamkomulag þessara aðila byggir á sameiginlegri ábyrgð á eflingu kaupmáttar byggðum á efnahagslegum og félagslegum stöðugleika.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×