Innlent

Bókelskur bófi: Stal óútgefnum Dan Brown frá Bjarti

Valur Grettisson skrifar
Týnda táknið er týnt.
Týnda táknið er týnt.

„Það var tvennt sem þeir tóku, annars vegar tölvuskanni og svo þýðinguna að nýjustu bók Dan Brown," segir Guðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri Bjarts, en óprúttinn þjófur fór inn í húsnæði Bjarts á Bræðraborgarstígnum og stal skanna og glóðvolgu handriti að Týnda tákninu, nýjustu skáldsögu Browns. Hann er hvað frægastur fyrir að hafa skrifað Da vinci lykilinn.

Þjófurinn náði að athafna sig í örfáar mínútur áður en ljósmyndari, sem vinnur í sama húsnæði, kom að honum og stökkti honum á flótta. Aðkoman var ljót að sögn Guðrúnar en allt var á rúi og stúi þegar starfsmenn Bjarts komu í vinnuna í morgun. Hún segist ekki viss en telur þó að ekkert annað sé horfið.

Aðspurð hvort þetta muni seinka útgáfunni á bók Browns, sem er sú fyrsta sem hann skrifar síðan hann gaf út Da Vinci lykilinn, svarar Guðrún að hún voni að svo sé ekki.

„Ég þarf að tala við lesarann en ég held að þetta hafi bara verið útprentun," segir Guðrún en handritið lá á borðinu hennar þegar bókelski þjófurinn tók það ófrjálsri hendi.

Áætlað er að sagan verði prentuð síðar í mánuðinum og endi í jólapökkum landsmanna. Bókin er þegar kominn út á ensku en Guðrún segist allt eins telja að þjófurinn hafi í raun gefist upp á ensku útgáfunni, enda fléttan snúin, og í örvæntingu sinni stolið íslenska handritinu til þess að klára þessa æsispennandi sögu á móðurmálinu.

Guðrún segir að starfsfólkinu sé dálítið brugðið eftir innbrotið en mikil innbrotsbylgja hefur riðið yfir landið undanfarna mánuði. „Það er einhvern veginn öðruvísi að lesa um innbrotin í blöðunum heldur en að verða fyrir því," segir Guðrún sem stefnir á að gefa hina eftirsóttu Dan Brown bók út fyrir jól. Þá geta þjófar jafnt sem heiðarlegir fengið hana í venjulegri bókaverslun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×