Innlent

Samfylkingin þáði 73 milljónir í styrki frá 25 aðilum árið 2006

Samfylkingin hefur aflað upplýsinga um fjáröflun einstakra aðildarfélaga hennar, kjördæmis- og sveitastjórnarráða árið 2006. Í tilkynningu frá flokknum segir að þessar fjáraflanir hafi að mestu farið fram í aðdraganda sveitastjórnarkosninga og komu til viðbótar fjáröflun Samfylkingarinnar á landsvísu á árinu 2006.



73 milljónir frá 25 fyrirtækjum


Styrkir þeirra lögaðila sem styrktu flokkinn um meira en 500.000 krónur námu rúmum 37 milljónum króna hjá aðildarfélögum, kjördæmis- og sveitastjórnarráði. Þeir lögaðilar sem styrktu flokkinn um meira en 500.000 krónur í fjáröflun flokksins á landsvísu á árinu 2007 námu um 36 milljónum króna.

Á árinu 2006 þáði flokkurinn því rúmar 73 milljónir króna frá 25 aðilum í styrki frá þeim sem veittu meira en 500.000 krónur.

Kaupþing styrkti flokkinn í heildina um 10 milljónir

Samtals styrkti Kaupþing flokkinn mest á árinu 2006 eða um 10 milljónir króna. Dagsbrún styrkti flokkinn um 5 milljónir, FL-Group um 8 milljónir, Glitnir um 5,5 milljónir, Landsbankinn um 8 milljónir, Actavis um 5,5 milljónir og Baugur um 5 milljónir.

Heildartala yfir styrki liggur ekki fyrir

Á árinu 2006 öfluðu aðildarfélögin, kjördæmis- og sveitastjórnarráð styrkja upp á rúmar 67 milljónir. Styrkir einstaklinga námu tæpum fimm milljónum og í öllum tilvikum var um lágar fjárhæðir að ræða. Styrkir 185 lögaðila námu rúmum 62 milljónum. Þar af styrktu 18 lögaðilar flokkinn um hærri fjárhæð en 5 milljónir og námu styrkir þeirra rúmum 37 milljónum.

Ekki liggur fyrir hver heildartalan yfir heildarstyrki til flokksins á landsvísu, það er þeir styrkir voru lægri en 500 þúsund krónum komu frá fyrirtækjum eða einstaklingum.



Samfylkingin skorar á aðra flokka


Samfylkningin skorar á aðra stjórnmálaflokka að birta upplýsingar um fjáröflun sína með sama hætti.


Tengdar fréttir

Bankarnir þrír styrktu Framsóknarflokkinn

Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing styrktu Framsóknarflokkinn um samtals 8,5 milljón króna á árinu 2006.Fjárstyrkur Kaupþings var 4 milljónir. Hæsti styrkurinn kom hins vegar frá verktakafyrirtækinu Eykt sem styrkti flokkinn um 5 milljónir.

Einungis Samfylkingin hefur ákveðið að upplýsa um alla styrki

Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkur landsins sem hyggst enn sem komið er birta upplýsingar um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Aðrir flokkar hafa ekki tekið ákvörðun um það hvort að upplýsingunum verði safnað saman og þær birtar opinberlega. Árið 2006 fóru fram sveitarstjórnarkosningar.

VG með allt uppi á borði

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna.

Styrkir Samfylkingarinnar birtir „innan skamms“

Samfylkingin mun fljótlega birta upplýsingar um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Endurskoðandi flokksins mun taka saman skýrslu sem gerð verður opinber innan skamms. Þetta segir Magnús Norðdahl, gjaldkeri flokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×