Handbolti

Aron Kristjáns: Erfitt þegar Landin er í stuði

Arnar Björnsson í Doha skrifar
Aron Kristjánsson segir að sigur Dana á Íslendingum hafi verið sanngjarn. Hann vill ekki svara því hvort hann myndi velja sömu leikmenn ef hann stæði frammi fyrir því að velja liðið núna.

„Auðvitað er það svekkjandi að falla úr keppni. Ef maður lítur á leikinn í kvöld að þá voru það sanngjörn úrslit að Danir unnu leikinn en þú vilt alltaf eitthvað meira.“    

Áttum við einhverja möguleika gegn Dönum. Þeir byrjuðu eins og herforingjar, Landin varði eins og berserkur, skotin hjá okkar mönnum voru ekki nógu góð og úrslitin voru eiginlega ráðin í byrjun?

„Það er mjög erfitt að spila gegn Dönum þegar Landin ver svona vel. Í byrjun vorum við að klikka á nokkrum dauðafærum og skutum of snemma úr tveimur þremur sóknum í byrjun. Við ætluðum að gefa okkur aðeins meiri tíma til að halda tempóinu niðri.

Það er mjög erfitt að komast í vörnina og ná skiptingum og að stilla upp vörninni þegar maður lýkur ekki sóknum almennilega á móti Dönum. Við héldum áfram allan leikinn, gáfumst aldrei upp.  

Markmið okkar var að þetta yrði í járnum síðustu 10 mínúturnar en við vorum einhverjum 6 mörkum undir þegar 10 mínútur voru eftir. Þá fóru menn að taka meiri sjensa en ef við hefðum á þessum kafla náð að minnka þetta í 3-4 mörk að þá hefðum við getað gert þetta að leik í lokin."

Ef þú værir að velja liðið í dag eftir það sem þú hefur séð, myndir þú velja þessa sömu menn?

„Nú fer maður bara heim og endurskoðar þetta og fer yfir mótið leik fyrir leik, aðdraganda og fleira. Við greinum það hvað við þurfum að vinna í og gera betur. Við spiluðum nokkra góða leiki en það voru líka mjög slæmir kaflar á milli og við þurfum að fá meiri stöðugleika.“

Maður skilur ekki af hverju þið lendið í þessu leik eftir leik að byrjunin er svona hörmuleg.

„Já það er nokkuð ljóst að það þarf að skoða það“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Snorri: Mótið er vonbrigði

Snorri Steinn Guðjónsson var svekktur með tapið gegn Dönum. Hann segir að liðið hafi ekki spilað vel í mótinu og vonar að Íslendingur verði heimsmeistari.

Björgvin Páll: Súrt að falla úr leik á móti Dönum

Björgvin Páll Gústavsson varði tuttugu skot á móti Dönum í kvöld og var enn einu sinni besti leikmaður mótsins. Björgvin Páll var veikur í gær og um tíma óvíst hvort hann gæti spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×