Handbolti

Arnór: Gef áfram kost á mér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór reynir skot að marki Frakka.
Arnór reynir skot að marki Frakka. vísir/epa
Arnór Atlason var að vonum svekktur eftir tap Íslands fyrir Frökkum í 16-liða úrslitum á HM í Frakklandi í dag.

„Maður er svekktur að detta út. Súra staðreyndin er sú að við vorum undir í hálfleik þrátt fyrir að hafa spilað frábærlega. Við byrjuðum mjög vel og fengum auðveld mörk úr hraðaupphlaupum sem þú færð ekki alltaf á móti Frökkum. Það var svekkjandi að hafa ekki náð að halda þessum leik lifandi lengur í seinni hálfleik,“ sagði Arnór en íslenska liðið var einu marki undir í hálfleik, 14-13. Í seinni hálfleik reyndust heimsmeistararnir svo sterkari og lönduðu sex marka sigri, 31-25.

„Þetta hefði getað farið mjög illa, við vorum komnir sjö mörkum undir um miðjan seinni hálfleik. En við komum til baka og minnkuðum muninn í þrjú mörk og fáum plús fyrir það.“

Leikurinn fór fram á Stade Pierre-Mauroy í Lille, knattspyrnuleikvang sem var breytt í handboltahöll. Um 28.000 áhorfendur voru á leiknum og stemmningin mikil. En hvernig var upplifunin að spila þennan leik?

„Maður hugsar kannski til leiksins þegar maður lítur til baka. En á meðan leikurinn er í gangi hugsar maður bara um hann. Ég hef prófað þetta tvisvar áður á Parken og þetta er mjög gaman. Það var samt helvíti kalt þarna,“ sagði Arnór.

En ætlar hann að gefa áfram kost á sér í landsliðið?

Ég myndi allavega ekki tilkynna þér það fyrstur,“ sagði Arnór og hló við. „Ég myndi fyrst tala við mína nánustu og þjálfarann. Það er stefnan. En það er greinilega í konsepti þjálfarans að yngja upp en mér fannst ég alltaf eiga tilkall til þess að spila.

„Það er bara ákvörðun þjálfarans hvort hann vilji hafa mig áfram en ég gef áfram kost á mér,“ sagði Arnór að lokun.




Tengdar fréttir

Ólafur: Var erfitt að gera leik úr þessu

Ólafur Guðmundsson spilaði vel gegn Frökkum í kvöld en það var ekki nóg þegar strákarnir okkar féllu úr leik í 16-liða úrslitum á HM í handbolta. Frakkland vann að lokum sex marka sigur, 31-25.

Svona er stemningin í Lille

Mikil stemning er fyrir leik Frakka og Íslendinga hérna í Lille. Raðir mynduðust fyrir utan íþróttavöllinn löngu áður en byrjað var að hleypa áhorfendum inn á völlinn. Stuðningsmennirnir voru í frönsku fánalitunum og margir þeirra voru búnir að spandera í andlitsmálningu.

Uppselt á leikinn í kvöld

Það verður slegið met á HM í kvöld er rúmlega 28 þúsund áhorfendur mæta á leik Frakklands og Íslands á 16-liða úrslitum HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×