Gagnrýni

Algjör leiksigur Sigga Sigurjóns

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Siggi Sigurjóns og Sigrún Edda leika hjón í myndinni.
Siggi Sigurjóns og Sigrún Edda leika hjón í myndinni.
Afinn

Leikstjóri: Bjarni Haukur Þórsson

Aðalhlutverk: Sigurður Sigurjónsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann



Handritið að Afanum er byggt á samnefndum einleik sem settur var upp í Borgarleikhúsinu. Myndin fjallar um Guðjón, sem Sigurður Sigurjónsson leikur. Hann er orðinn gamall. Kominn á eftirlaunaaldur. Farinn að finna fyrir alls konar eymslum sem áður voru óþekkt. Er orðinn helst til lengi að kasta af sér þvagi. Aldurinn fer ekkert sérstaklega vel í okkar mann og eins og hann segir á einum stað í myndinni hefur hann aldrei verið jafn týndur á ævinni.

Hér er ekki á ferð stórkostlega flókin mynd með óvæntum u-beygjum. Sagan er í raun einföld. Það er byrjun, miðja og endir. Það eru skarpir árekstrar og úrlausn vandamála. En þessari einföldu sögu eru gerð góð skil. Myndin heldur manni frá upphafi til enda og maður heldur með persónunum, þó sérstaklega Sigga Sigurjóns. Hann er svo yndislega sympatískur í ellikreppunni sinni að maður hlær og grætur með honum og vegna einlægrar túlkunar leikarans nær maður að upplifa allar hans hæðir og lægðir með honum. Þetta er leiksigur fyrir Sigga. Ein hans besta frammista á ferlinum. Hann missir aldrei dampinn og tengist áhorfendum órjúfanlegum böndum.

Aðrir leikarar standa sig með prýði. Sigrún Edda Björnsdóttir, sem leikur konu Sigga, kemst vel frá sínu og lýsir upp hvíta tjaldið með sínum töfrum, líkt og hún hefur lýst upp leiksviðið í fjöldamörg ár. Svo eru óvæntir senuþjófar eins og Steinn Ármann og Guðlaug Elísabet – fullu hjónin úti á Kanarí sem elska ekkert meira en að glamra gamla dægurlagaslagara á gítar langt fram á nótt. Og Jóhann Sigurðarson á feikigóða og sannfærandi innkomu.

Handritið er ágætlega skrifað og oft tekst vel til með brandara. Ekki alltaf, en oft. Leikstjórinn kemst líka vel frá sínu verki og dettur sem betur fer ekki oft í þá gryfju að draga atriði á langinn svo þau missi marks.

Afinn er kærkomin tilbreyting frá þeim íslensku myndum sem hafa verið gerðar síðustu ár. Myndin er hreinræktað skemmtiefni sem öll fjölskyldan ætti að geta hlegið að – og kannast við þær aðstæður sem afinn sjálfur lendir í.

Niðurstaða:

Grátbrosleg mynd þar sem Siggi Sigurjóns missir aldrei dampinn.


Tengdar fréttir

Guðni leikur sjálfan sig óvart

Guðni Ágústsson þreytir frumraun sína í kvikmyndaleik í myndinni Afanum. Hann hafði þó ekki hugmynd um að hann væri á leið á hvíta tjaldið fyrir en eftir tökur.

Nýt þess í botn að vera Afinn

Stórleikarinn Sigurður Sigurjónsson hefur ekki tölu á þeim hlutverkum sem hann hefur túlkað. Afinn er eitt af hans uppáhaldshlutverkum á sviði og nú birtist hann á hvíta tjaldinu í dag. En hver er maðurinn bak við persónurnar, já og skeggið?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×