Erlent

„Japan mun ekki láta undan hótunum hryðjuverkamanna“

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsætisráðherrann ræddi við blaðamenn þar sem hann er staddur í Jerúsalem, en hann er á fjögurra daga ferðalagi um Mið-Austurlönd.
Forsætisráðherrann ræddi við blaðamenn þar sem hann er staddur í Jerúsalem, en hann er á fjögurra daga ferðalagi um Mið-Austurlönd. Vísir/AFP
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan, fordæmir gíslatöku Íslamska ríkisins og að samtökin hafi hótað að taka tvo japanska borgara af lífi. ISIS vilja 200 milljónir dala, meira en 24 milljarða króna, innan þriggja sólarhringa, annars verða þeir Kenji Goto Jogo og Haruna Yukawa teknir af lífi.

Stjórnvöld Japan ákváðu nýverið að styrkja þær þjóðir sem berjast gegn uppgangi ISIS um 200 milljónir dala og þess vegna vilja samtökin fá umrædda upphæð.

„Með því að borga 200 milljónir munu þið bjarga lífi tveggja borgara ykkar. Annars mun þessi hnífur verða að martröð ykkar,“ segir maðurinn sem gengur undir nafninu Jihadi John, böðuð ISIS, í myndbandi þar sem hótunin kemur fram. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Samkvæmt BBC segir Abe þessa hótun vera óásættanlega og að stjórnvöld hans muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma gíslunum til bjargar. Þá sagði hann að Japan myndi ekki láta undan hótunum hryðjuverkamanna.

Forsætisráðherrann ræddi við blaðamenn þar sem hann er staddur í Jerúsalem, en hann er á fjögurra daga ferðalagi um Mið-Austurlönd. Hann sagði að Japan myndi ekki hætta við stuðning sinn við baráttuna gegn ISIS.

Kenji Goto Jogo er blaðamaður sem stofnaði sitt eigið framleiðslufyrirtæki árið 1996. Hann hefur ferðast á milli átakasvæða um árabil þar sem hann tekur upp myndskeið og selur fjölmiðlum.

Talið er að hann hafi verið handsamaður í orrustunni um Aleppo, en uppreisnarmenn, ISIS og ríkisstjórn Sýrlands hafa hart barist um borgina.

Harun Yukawa var handsamaður í ágúst í fyrra og fjölmiðlar þar komust þá að því að hann á fyrirtæki sem heitir: Private Military Company. Á Facebooksíðu sinni hefur hann birt myndbönd af sér þar sem hann er að skjóta af byssum í Sýrlandi.

Eftir að hann var handsamaður var birt myndband á Youtube, sem sýndi hann í haldi vígamanna.

Á vef International Business Times segir að Yukawa hafi misst eiginkonu sína vegna krabbameins, orðið gjaldþrota og hafi misst fyrirtæki sitt. Hann var heimilislaus um skeið og er sagður eiga við geðræn vandamál að stríða.

Hér má sjá grein Reuters um Yukawa, sem fjallar um líf hans og skrifuð var þegar hann var handsamaður í fyrra.


Tengdar fréttir

„Ég er kominn aftur Obama“

Hinn Breski rappari Abdel-Majed Abdel Bary er nú talinn hafa myrt tvo blaðamenn í nafni Íslamska ríkisins.

Reyna að bera kennsl á böðla IS

Í nýju myndbandi Íslamska ríkisins eru andlit 16 böðla sýnd og þegar er mögulega búið að bera kennsl á tvo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×