Enski boltinn

„Ég vildi drepa þjálfarann minn“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frá æfingasvæði Newcastle. Myndin tengist innihaldi fréttarinnar ekki beint.
Frá æfingasvæði Newcastle. Myndin tengist innihaldi fréttarinnar ekki beint. Vísir/Getty
Derek Bell, fyrrum leikmaður Newcastle, er einn þeirra fjöldamarga knattspyrnumanna sem hafa stigið fram og greint frá kynferðislegri misnotkun sem hann varð fyrir sem barn af hendi þjálfara síns.

Um miðjan þennan mánuð greindi Andy Woodward frá kynferðislegu ofbeldi sem hann varð fyrir af hendi Barry Bennell, fyrrum knattspyrnuþjálfara hjá Crewe. Síðan þá hafa fjölmargir knattspyrnumenn stigið fram og greint frá misnotkun sem þeir hafa orðið fyrir.

Sjá einnig: Þekktur barnaníðingur fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fundist meðvitundarlaus

Bell var á aldrinum 12 til 16 ára þegar hann var misnotkaður kynferðislega af George Ormond, þjálfara hjá ungmennafélaginu Montagu and North Fenham.

Ormond fékk sex ára fangelsisdóm árið 2002 fyrir að hafa beitt fjölda unga drengja kynferðislegu ofbeldi.

Bell var hættur að spila knattspyrnu þegar hann komst að því að Ormond væri byrjaður að starfa sem þjálfari í knattspyrnuakademíu Newcastle.





Bell lét forráðamenn Newcastle vita eftir að hann sá Ormond sniglast í kringum gistiheimili í bænum þar sem margir ungir leikmenn Newcastle gistu.

Það reyndist Bell ofviða að sjá Ormond aftur og greindi hann frá því í samtali við enska dagblaðið Guardian að hann hafi þá ákveðið að fara að heimili Ormond, vopnaður hnífi.

„Ég ætlaði mér að drepa gaurinn. Ég hugsaði með mér að ég gæti ekki haldið áfram að lifa. Hvert sem ég fór þá fylgdi hann,“ sagði Bell.

Sjá einnig: Chelsea rannsakar kynferðislegt ofbeldi hjá félaginu

„Allt þetta vakti upp gamlar minningar um hann og ég vildi drepa hann. Ég fór að heimilinu hans, sparkaði niður hurðina en sem betur fer hans vegna þá var hann ekki heima.“

Bell segir að Ormond hafi beitt hann hrottalegu ofbeldi og í hundruð mismunandi tilvikum. Hann hafi svo farið aftur á heimili Ormond nokkru síðar og krafist hann svara.

„Hann baðst aldrei afsökunar. Ég spurði einfaldlega af hverju en hann sagðist bara ekki vita það. Aðalmálið hjá honum snerist um hvort að ég myndi fara til lögreglunnar eða ekki,“ sagði Bell.

Bell reyndi þrívegis að svipta sig lífi vegna misnotkunarinnar. Viðtalið við hann má lesa í heild sinni hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×