Enski boltinn

„Ég var Luke og þekki stöðu Leicester“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Markahetjan Jamie Vardy og Mark Hamill.
Markahetjan Jamie Vardy og Mark Hamill. Vísir/Getty
Mark Hamill, leikarinn sem er þekktastur fyrir að leika Luke Skywalker (Loga geimgengil) í Stjörnustríðsmyndunum, óskaði leikmönnum Leicester fyrir að koma öllum að óvörum og vinna enska meistaratitilinn.

„Enginn veit hvernig það er að vera lítilmagninn og stórvanmetinn. Ég var Logi og var í sömu stöðu og Leicester. Þið komið okkur öllum á óvart og hirtuð gullið,“ sagði Hamill í myndbandskveðju sem var birt á heimasíðu The Sun.

„Til hamingju, Leicester. Það eru allir himinlifandi fyrir ykkar hönd. Mátturinn er með ykkur núna, á morgun og ávallt,“ sagði Hamill.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×