Innlent

Yfirlýsingu um goslok frestað framyfir helgi

Eldgosinu í Eyjafjallajökli er ekki lokið formlega. Mynd/ Vilhelm.
Eldgosinu í Eyjafjallajökli er ekki lokið formlega. Mynd/ Vilhelm.
Opinberri yfirlýsingu um að gosinu í Eyjafjallajökli sé lokið verður frestað fram yfir helgi, samkvæmt ákvörðun, sem tekin var á samráðsfundi Almannavarna og visindamanna í gær.

Enn mælist lítilsháttar órói í jöklinum og GPS mælingar sýna lítilsháttar yfirborðsbreytingar. Þá er yfirborð jökulsins víða óstöðugt vegna þykktar öskulags, en það skapar hættu á eðjuflóðum, eins og tvívegis hafa hlaupið fram til suðurs af jöklinum.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×