Erlent

WHO ræðir hertari ferðatakmarkanir

Atli Ísleifsson skrifar
Um 4.500 manns hafa látist úr ebólu síðustu mánuði.
Um 4.500 manns hafa látist úr ebólu síðustu mánuði. Vísir/AFP
Neyðarnefnd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) mun koma saman til að ræða frekari viðbrögð vegna ebólufaraldursins.

Fundað verður í Genf þar sem rætt verður hvort taka eigi upp skimanir á landamærum og hertari ferðatakmarkanir til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar.

Bandarísk yfirvöld hafa tekið upp nýjar reglur sem kveða á um að farþegar frá verst hrjáðu ríkjunum verði að koma inn í landið á einum af fimm flugvöllum.

Sérstöku útgöngubanni hefur verið komið á í bæ í Síerra Leóne eftir að tveir voru skotnir til bana í mótmælum í gær.

Rúmlega 4.500 manns hafa látið lífið úr ebólu síðustu mánuði, flesir í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne.

Í frétt BBC kemur fram að WHO hafi sætt mikill gagnrýni fyrir að bregðast seint við útbreiðslu veirunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×