Viðskipti innlent

Vöruskiptajöfnuður jákvæður um 7,2 milljarða

ingvar haraldsson skrifar
Útflutningur nam 50,6 milljörðum króna og innflutningur nam 43,4 milljörðum í janúar.
Útflutningur nam 50,6 milljörðum króna og innflutningur nam 43,4 milljörðum í janúar. vísir/gva
Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um 7,2 milljarða króna í janúar. Útflutningur nam 50,6 milljörðum króna og innflutningur nam 43,4 milljörðum samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands.

Afgangur af vöruskiptum er því nær sá sami og í janúar á síðasta ári, einungis munaði 14 milljónum milli ára. Í janúar 2014 nam innflutningur 40,8 milljörðum og útflutningur 43,4 miljörðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×