Handbolti

Von á um 200 Íslendingum á leikinn í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hún var tiltölulega róleg stemningin á barnum áðan en stuðið var að byrja er Vísir yfirgaf svæðið.
Hún var tiltölulega róleg stemningin á barnum áðan en stuðið var að byrja er Vísir yfirgaf svæðið. vísir/hbg
Það var að myndast ágætis stemning á O'Carolans Harp-barnum í Metz er Vísir leit þar við áðan.

Þar eru stuðningsmenn Íslands að hittast og hita upp fyrir leikinn gegn Spánverjum á eftir.

HSÍ var að afhenda um 180 miða og svo hafa einhverjir keypt sér miða sjálfir. Má því reikna með um 200 Íslendingum á leiknum í kvöld.

Fólkið var svona hæfilega bjartsýnt fyrir fólkið en lofaði þó að hjálpa strákunum með því að öskra þá hraustlega áfram.

Róbert Geir hjá HSÍ hélt fast um miðana.vísir/hbg

Tengdar fréttir

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×