Viðskipti innlent

Von á tillögum um breytingar á peningakerfinu fyrir áramót

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Frosti hefur talað fyrir upptöku heildarforðakerfis en með því færist öll peningaútgáfa á hendur ríkisins.
Frosti hefur talað fyrir upptöku heildarforðakerfis en með því færist öll peningaútgáfa á hendur ríkisins. Vísir / Pjetur
Starfshópur sem vinnur að skýrslu um hvaða breytingar eru mögulegar á brotaforðakerfinu reiknar með að skila tillögum sínum fyrir áramót. Þetta segir Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknar og formaður hópsins. Hann segir að hópurinn hafi nýtt sumarið í að viða að sér efni sem nú sé unnið úr.

Söfnuðu efni í sumar

Hópurinn starfar á vegum forsætisráðuneytisins en auk Frosta skipa hópinn tveir hagfræðingar, þau Þorbjörn Atli Sveinsson og Kristrún Mjöll Frostadóttir. Sjálfur er Frosti mikill áhugamaður um breytt peningakerfi en hann segir að vinnan í hópnum hafi dýpkað skilning sinn á málinu.

„Megnið af vinnunni fór fram í sumar, þá var efni viðað í skýrsluna. Nú er verið að setja hana í læsilegt form. Við vonum að við klárum það fyrir áramótin en þetta þarf bara að taka sinn tíma,“ segir Frosti um stöðu mála. „Við stefnum að því að þessu verði öllu lokið fyrir áramót.“

Skoðuðu söguna

Hópurinn hafði það að markmiði að skoða sögu peningamyndunar hér á landi, hvernig gengið hefur að stýra peningamagni í landinu og með hvaða aðferðum það hefur myndast. Þá skoðaði hópurinn líka hvaða leiðir væru til að bæta þetta kerfi.

„Það er búið að fara í gegnum það allt,“ segir hann og bætir við mikið sé af gögnum. Frosti getur ekki sagt hvenær tillögur hópsins verða kynntar en hann vill ekki upplýsa um hvað kemur þar fram. Hópurinn er ein af 23 verkefnanefndum sem starfa í umboði forsætisráðherra.

Lengi viljað breytingar

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Frosti blandar sér í umræðuna um breytingar á brotaforðakerfinu en hann er einn af forsvarsmönnum átaksins Betra peningakerfi. Í gegnum þau samtök hefur Frosti talað fyrir upptöku heildarforðakerfis en með því færist öll peningaútgáfa á hendur ríkisins og bönkum yrði aðeins leyft að lána út peninga sem þegar hafa verið lagðir inn.

„Í sjálfu sér hefur skilningur bara dýpkað og ég kynnst þessu enn betur, hvernig í málinu liggur. Ég hef bara staðfest betur í því að gera þarf endurbætur á þessu fyrirkomulagi til að koma í veg fyrir að það verði aftur svipuð vandamál í framtíðinni eins og hingað til hafa verið,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×