Fótbolti

Viðar Örn valinn leikmaður mánaðarins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar með verðlaunin sín. Spurning hvernig gangi að skipta þessari ávísun?
Viðar með verðlaunin sín. Spurning hvernig gangi að skipta þessari ávísun? mynd/facebook
Framherjinn Viðar Örn Kjartansson hefur verið sjóðheitur í liði Malmö og var verðlaunaður í gær.

Þá var Viðar Örn valinn leikmaður mánaðarins í sænsku úrvalsdeildinni.

Heiðrinum fylgdi risastór ávísun upp á 140 þúsund krónur.

Viðar Örn er búinn að skora tólf mörk fyrir Malmö á leiktíðinni og er markahæstur í deildinni. Hann er búinn að skora tveimur mörkum meira en næstu menn á markalistanum.


Tengdar fréttir

Viðar Örn hetja Malmö

Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Malmö, skoraði eina mark liðsins þegar það gerði 1-1 jafntefli við Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Síminn hringir mikið hjá Viðari Erni

Viðar Örn Kjartansson er á flugi í sænsku deildinni þar sem hann er markahæstur. Hann segist finna fyrir miklum áhuga frá öðrum liðum. Viðar komst ekki í EM-hópinn og viðurkennir að það hafi verið sárt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×