Viðskipti erlent

Verkföll minnka framleiðslu hjá Hyundai

Finnur Thorlacius skrifar
Úr verksmiðju Hyundai.
Úr verksmiðju Hyundai. Mynd/Hyundai
Tíð verkföll í samsetningarverksmiðjum Hyundai-bílaframleiðandans í Kóreu eru farin að bíta hressilega í budduna hjá fyrirtækinu. Þessi verkföll hafa náð til 50.000 verkamanna í verksmiðjum Hyundai og orsakað tapaða framleiðslu á 132.000 bílum að virði 300 milljarða króna.

Verkfallsaðgerðirnar eru tilkomnar vegna launadeilu milli stjórnenda Hyundai og verkamanna í verksmiðjum þeirra og hafa viðræður staðið yfir megnið af árinu. Eru þessi verkföll þau umfangsmestu sem Hyundai hefur þurft að glíma við í annars skrautlegri verkfallssögu sinni, en á síðustu 29 árum hafa aðeins liðið fjögur ár án verkfalla í verksmiðjum þess.

Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa hótað að hafa afskipti af þessum verkföllum ef þau halda áfram og telja að verkamenn fari fram á of rausnarlega hækkun þrátt fyrir að laun þeirra séu góð. Stéttarfélag verkamanna hefur margsinnis gengið út af samningafundum og hefur það langt í frá glatt forsvarsmenn Hyundai og stjórnvöld landsins. Viðræður standa yfir og var haft eftir samningamanni stéttarfélags starfsmanna að góðar líkur væru á að félagið skrifi undir nýjan samning á allra næstu dögum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×