Viðskipti innlent

Verðbólga mælist 1,5 prósent

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Verðbólga mældist 1,6 prósent í síðasta mánuði.
Verðbólga mældist 1,6 prósent í síðasta mánuði. vísir/vilhelm
Verðbólga mælist 1,5 prósent á seinustu 12 mánuðum samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Í síðasta mánuði mældist hún 1,6 prósent.

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að verð á ferðum og flutningum hækkaði um 0,9 prósent og verð á þjónustu hótela og veitingastaða hækkaði um 1,9 prósent.

Búvörur og grænmeti hafa hækkað mest, eða um 3,1 prósent. Innlendar vörur og grænmeti hafa þá hækkað um 2,8 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×