Fótbolti

Veit ekki hvort FIFA hafi nægilegar sannanir

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Samsett mynd/Getty/GVA
Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar KSÍ, viðurkenndi í samtali við blaðamann Vísis að hann væri ekki viss hvernig FIFA myndi taka á máli Luis Suárez. Suárez beit Giorgio Chiellini í leik Úrúgvæ og Ítalíu í gær en þetta er í þriðja sinn sem Suárez bítur leikmann inn á vellinum.

Suárez á von á löngu banni verði hann fundinn sekur enda er þetta í þriðja sinn sem hann bítur leikmann. Suárez lýsti yfir sakleysi sínu í viðtali við úrúgvæska fjölmiðla eftir leikinn. Suárez fékk sjö leikja bann þegar hann beit Otman Bakkal í leik Ajax og PSV árið 2010 en virtist ekki læra neitt af þeirri refsingu þar sem hann var á ferðinni þremur árum seinna. Þá var Branislav Ivanovic fórnarlambið og fékk Suárez tíu leikja bann.

„Samkvæmt reglum mótsins er aganefnd FIFA heimilt og skylt að taka fyrir alvarleg atvik sem gerast inn á vellinum sem dómarar sjá ekki. Heimildin og fyrirskipunin er til staðar en nú er bara að sjá hvað aganefndin gerir. Verkefnið hjá þeim er að fullvissa sig um að þetta hafi gerst eins og menn haldi fram, það er að Suárez hafi bitið hann,“ sagði Gylfi.

Gylfi átti von á því að málið fengi flýtimeðferð enda er stutt í næsta leik.

„Málið verður afgreitt áður en mótinu lýkur og væntanlega fyrir næsta leik hjá Úrúgvæ. Eina spurningin er hvort menn telji sig geta fullyrt að þetta sé rétt eins og myndirnar sína. Ég veit ekki hvort menn telji sig hafa fullnægjandi sönnun til þess að dæma hann en þetta mál verður augljóslega litið alvarlegum augum ef þeir finna sannanir. Þetta er ekki í fyrsta né annað skiptið sem hann er að bíta leikmann á vellinum,“ sagði Gylfi sem gat ímyndað sér að einhverju leyti málsvörn Suárez.

„Chiellini setur höndina fyrir hann sem leiðir til þess að loka á hlaupið hans og reyna að hindra hann sem leiðir til þess að hann snöggreiðist. Málsvörn hans verður eflaust að hann hafi verið að hlaupa með opinn munninn eins og venja er þegar hann hljóp á hann,“ sagði Gylfi sem viðurkenndi að málsvörnin væri afar þunn.

Gylfi minnti á að FIFA hefur rétt til þess að banna leikmanni að taka þátt í fótboltaleik bæði með félagsliði og landsliði í ákveðinn tíma. Það skyldi því enginn útiloka strax að Suárez verði í banni annað árið í röð þegar flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni.

„Þeir geta dæmt hann í bann frá knattspyrnuiðkun í ákveðinn tíma og þá skiptir engu máli með hvaða liði, hvort sem það sé með Liverpool eða Úrúgvæ,“ sagði Gylfi.


Tengdar fréttir

Suárez þarf að leita sér aðstoðar

Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, telur að Luis Suárez þurfi að leita sér aðstoðar eftir að hann beit leikmann í þriðja sinn á ferlinum í leik Úrúgvæ og Ítalíu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×